Hópur fólks í Samfylkingunni mótmælir nýsamþykktum lögum um brottvísunarstöð og krefst þess að þeim verði ekki framfylgt. Nýkjörinn borgarfulltrúi flokksins segir rangt að frelsissvipta börn.
Maður er í haldi grunaður um að hafa stungið tvo menn á knæpu í miðborg Reykjavíkur í gær.
Forsætisráðherra Noregs segir mikilvægt að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði áfram í fullu gildi, óháð því hvað verður um mögulegar aðildarviðræður Íslands.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við minni hagvexti hér á landi og vaxandi verðbólgu.
Skrifstofur Hagkaupa í Skútuvogi voru rýmdar vegna hótunar í dag.
Íranar segjast hafa lokað fyrir siglingar um Hormússund. Árásir Bandaríkjamanna og Írana héldu áfram í nótt. Þrír indverskir sjómenn voru drepnir í árás Bandaríkjamanna úti fyrir ströndum Ómans.
Fyrri hluta kjarnaborana vegna rannsóknar á jarðgöngum til Vestmannaeyja er lokið. Það ætti að skýrast síðar í ár hve raunhæf gangagerðin er.
Enn fjölgar ríkjum sem vilja banna börnum að vera á samfélagsmiðlum. Ríkisstjórn Kanada kynnti frumvarp þess efnis í gær.
Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst í kvöld á Azteca-velli í Mexíkóborg.