
Brúðkaupsveislan
Heajastallan - Bryllupsfesten
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Samísk kona bindur vonir við að 3000 gesta brúðkaup sonar hennar lyfti henni ofar í metorðastiganum. Hún fær börnin sín til að skippuleggja stórveisluna en sá hængur er á að systkinunum kemur alls ekki vel saman. Undirbúningurinn einkennist af fjölskylduerjum og algjörri ringulreið þar sem gömul leyndarmál leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sara Margrethe Oskal, Ánte Siri og Inga Márjá Utsi.