
200 ára afmæli Reykjavíkur
Upptaka frá árinu 1986. Bein útsending frá hátíðarhöldum á Arnarhóli í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar 18. ágúst 1986. Kynnar Sjónvarpsins voru Jón Hákon Magnússon, Karítas Gunnarsdóttir og Jón Gústafsson. Útsendingu stjórnuðu Maríanna Friðjónsdóttir og Tage Ammendrup. Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, Ríó Tríó, Gunnar Þórðarson, Ragnar Bjarnason, Diddú, Bubbi Morthens og Ragnhildur Gísladóttir komu fram ásamt öðrum.