Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson yfirheyrir íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Það geta ekki allir verið í fremsta flokki. Sumar stjörnur eru bara alveg með þetta og skyggja á allt og alla umhverfis. Þetta er fólkið sem þú vilt ekki vera með uppi á sviði ef þú þráir athygli.
Í Toppstöðinni er fylgst með ólíkum hópum frumkvöðla í spennandi vegferð hugmyndar, af þróunarstigi til fullbúinnar vöru eða þjónustu. Meðal annars verður fylgst með nýjungum á sviði húsbygginga, símatækni, orku, eldsneytis, heilsuvara og afþreyingar fyrir börn svo fátt eitt sé nefnt.
Þáttaröð í sex hlutum þar sem Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir kryfja til mergjar geðheilsu og greiningu á andlegri vanheilsu ungs fólks, en kvíði og aðrir andlegir kvillar eru sívaxandi vandamál. Í þáttunum er fjallað um nokkra tiltekna kvilla, meðferð og mögulegar úrlausnir, algengar mýtur og rætt við fólk sem greinst hefur með geðröskun, aðstandendur og fagfólk. Þættirnir eru sjálfstætt framhald Edduverðlaunaþáttaraðarinnar Framapots. Leikstjóri: Arnór Pálmi Arnarsson. Framleitt af Sagafilm.
Hver er munurinn á rétthugmyndum og ranghugmyndum? Þrír af hverjum hundrað einstaklingum fara í geðrof um ævina. Geðrofssjúkdómar eru flóknir og fjölbreyttir en undir þá skilgreiningu falla til dæmis geðklofi og geðhvörf. Stelpurnar ræða við fjóra einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að hafa farið í geðrof, sérfræðinga og kíkja svo í innlit/útlit á Kleppi.
Nýir íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Sigrún Ágústsdóttir hefur tamið sér að segja alltaf já við skemmtilegum hugmyndum. Hún fer reglulega í sjósund, gengur á fjöll og eftir að hún hætti að vinna sem leikskólakennari er hún dugleg að ferðast. Til að fjármagna ferðalögin hefur hún tekið að sér ýmis fyrirsætustörf og minni leikhlutverk og lék nýverið í myndinni True Detective. Sigrún hefur aðstoðað innflytjendafjölskyldur á Íslandi að aðlagast landi og þjóð auk þess sem hún hefur verið svokölluð „amma að láni“.
Danskir þættir um móðurhlutverkið. Í þáttunum er fjallað um þær miklu breytingar sem fylgja því að verða móðir, kröfurnar sem mæður gera til sjálfra sín og hvernig gengur að samræma móðurhlutverk, fjölskyldulíf og vinnu.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Í Landanum í kvöld skiptum við um dekk á reiðhjólum, við hittum lestrarhesta í Vestmannaeyjum, skoðum fuglalífið á Skagaströnd, kynnumst bókagerðarkonu frá Venezuela og hittum sjóarann og söngvarann Sigga Björns.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Breskir spennuþættir frá 2023 í leikstjórn Dries Vos. Ung hjón flytja í nýtt og glæsilegt hverfi og horfa björtum augum til framtíðar. Fljótlega eftir flutninginn vingast þau við nágrannahjón sín en sá vinskapur á eftir að snúa ástarlífi unga parsins á hvolf og draga ófyrirséðan dilk á eftir sér. Þættirnir eru byggðir á hollensku sjónvarpsþáttaröðinni New Neighbours. Aðalhlutverk: Sam Heughan, Eleanor Tomlinson og Jessica De Gouw. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bandarísk þáttaröð um slökkviliðsmenn og bráðaliða í Chicago en hetjurnar á slökkvistöð 51 víla ekkert fyrir sér. Meðal leikenda eru Jesse Spencer, Taylor Kinney, Eamonn Walker og David Eignberg. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2019. Lögreglufulltrúinn Humberto og samstarfskona hans, Alice, rannsaka dularfull andlát tveggja ungra kvenna. Aðalhlutverk: Adriano Luz, Jani Zhao og Afonso Pimentel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.