Þriðja sería af Elías, sem er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
Matthildur er 12 ára stelpa sem býr yfir sérstöku leyndarmáli. Á hverjum degi þegar hún vaknar býr hún yfir nýjum ofurkrafti sem hún þarf að læra að stjórna. Aðeins besti vinur hennar veit af þessu og saman lenda þau í alls kyns ævintýrum.
Heimildarþættir um samfélagsmiðla í umsjón Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur og Viktoríu Hermannsdóttur. Í þáttunum rýnum við í samfélagsmiðlanotkun Íslendinga og skoðum hvaða áhrif þeir hafa á líf okkar og sjálfsmynd. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Í þessum þætti kynnumst við fólki sem hefur skapað sér starfsferil í gegnum samfélagsmiðla og fá borgað fyrir að gera það sem þeim finnst skemmtilegast.
Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjón: Eva Ruza. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Í átta þáttum ræðir Þóra Arnórsdóttir við konur sem hafa rutt brautina á hinum ýmsu sviðum mannlífsins. Rætt verður við fyrstu lögreglukonurnar, fyrsta prófessorinn, fyrstu konuna sem leiddi kvennalandslið, fyrsta prestinn, einn fremsta kvikmyndaklippara Íslands, einn fyrsta gullsmiðinn og fyrstu íslensku konuna sem söng lag inn á plötu. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Rætt er við Sigrúnu Svavarsdóttur sem er sú kona sem næst hefur komist því að setja upp skipstjórahúfuna á togara.
Í Leiðangrinum fær Sigyn fluggáfaða krakka til að hjálpa sér að leysa ráðgátur um allt land.
Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Leiðangurinn er í Vestmannaeyjum í dag og við förum upp á nýjasta eldfjallið í eyjunni, Eldfell. Það er ýmislegt sem gengur á en tekst stelpunum að finna réttan stað græða hjartað í eldfjallið aftur?
Þáttakendur:
Alexandra Ósk Viktorsdóttir
Anna Sif Sigurjónsdóttir
Kristín og Arnór kynnast dularfullri stelpu sem grunar sögukennarann um eitthvað skuggalegt. Hvað ætli sé í gangi hjá honum Sigurjóni sögukennara?
Leikarar: Kristín Erla Pétursdóttir, Arnór Orri Atlason, Arnþrúður Karen Viktorsdóttir, Agnes Wild og Karl Pálsson
Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir og Elvar Egilsson
Addú, Kristín, Arnór og Amma elta Sigurjón sögukennara og finna hann í skólanum hennar Addú. En fljótlega lenda þau í miklum vandræðum.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Nýir íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Páll Benediktsson og Birna Björg Berndsen ventu kvæði sínu í kross árið 2020 þegar Páll fór á eftirlaun og fluttu í kúlulaga glerhús rétt utan við Hellu á Rangárvöllum. Í glerhýsinu, Auðkúlu, búa þau og reka kaffihús í dyragættinni heima hjá sér. Sannkallaður ævintýraskógur umlykur Auðkúlu og þau hafa byggt tvö gistihús á jörðinni.
Heimildarmynd frá 2021 um hvernig söngur í kór getur haft langvarandi jákvæð áhrif á börn og unglinga. Rætt er við núverandi og fyrrverandi félaga í barna- og unglingakórum Selfosskirkju um hvernig kórsöngurinn hefur mótað þau. Dagskrárgerð: Anna Edit Dalmay.
Fjórða þáttaröð þessara þýsku glæpaþátta um lögreglumanninn Gereon Rath frá Köln sem rannsakar undirheima Berlínarborgar á fjórða áratug síðustu aldar. Kreppan mikla er skollin á og nasistar á leið til valda. Aðalhlutverk: Volker Bruch, Liv Lisa Fries og Lars Eidinger. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Íslensk mynd byggð á skáldsögunni Tryggðarpantur eftir Auði Jónsdóttur. Til að ná endum saman fær Gísella Dal fær tvær konur til þess að leigja hjá sér. Fyrst um sinn gengur sambúðin vel. Með tímanum fara menningarárekstrar að ógna valdi Gísellu, geði hennar og sjálfsmynd. Aðalhlutverk: Elma Lísa Gunnarsdóttir, Enid Mbabazi, Raffaella Brizuela Sigurðardóttir og Claire Harpa Kristinsdóttir. Leikstjóri: Ásthildur Kjartansdóttir.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Margrómuð eintöl Alans Bennetts í nýrri útgáfu. Meðal flytjenda eru Sarah Lancashire, Martin Freeman, Kristin Scott Thomas, Jodie Comer and Maxine Peake. Einleikirnir voru teknir upp á tímum útgöngubanns og samkomutakmarkana í Bretlandi vegna heimsfaraldurs COVID-19. Ný kynslóð fremstu leikara Breta flytja klassísk handrit Alans Bennetts.