Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.
Danskir þættir þar sem við kynnumst fatahönnuðum sem leggja áherslu á fjölbreytileika og sjálfbærni.
Þættir frá 2011-2012 þar sem fjallað er um leiksýningar, kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og leikna sjónvarpsþætti. Leikmyndir, lýsing, hljóð og brellur kvikmynda og leikhúsa eru skoðuð og fylgst með framleiðslu einstakra kvikmyndaverka. Rýnt er í myndlist með upplýsandi og gagnrýnum hætti, nýjar leiksýningar fá ítarlega umfjöllun og gagnrýni og farið yfir feril einstakra listamanna.
Umsjónarmenn eru Þórhallur Gunnarsson, Sigríður Pétursdóttir, Vera Sölvadóttir og Guðmundur Oddur Magnússon. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Stuttir heimildarþættir um sambönd manna og hunda.
Fróðlegir skemmtiþættir þar sem Sigtryggur Baldursson fjallar um örnefni á Íslandi frá ýmsum sjónarhornum. Dagskrárgerð: Guðlaugur Maggi Einarsson.
Þættir frá árunum 1989-1990 í umsjón Jóns Gunnars Grjetarssonar. Kynntar eru helstu gönguleiðir á þeim stöðum sem heimsóttir eru. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Tónlistarþættir frá árunum 1986-1987. Kynnir: Jón Gústafsson. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!
Nokkrir kunnulegir og ókunnulegir fiskar kynna sig fyrir áhorfendum.
Hinrik hittir einhvern nýjan á hverjum degi og lendir í ótrúlegustu uppákomum.
Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Tillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.
Daglega lífið hjá Hælbein fjölskyldunni heldur áfram sinn vanagang. En þegar Blæja og Bára eiga í hlut þá er enginn dagur rólegur.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Breskir heimildarþættir í tveimur hlutum þar sem vísindamenn kynna hvaða afleiðingar það hefur ef hlýnun jarðar fer yfir 1,5 gráður. Farið er yfir þær tækninýjungar sem gætu spornað við frekari hlýnun og hvernig hinn almenni borgari getur orðið að liði.
Finnskir dramaþættir frá 2023 um fólk á miðjum aldri sem fæst við afleiðingar breytingaskeiðsins og foreldrahlutverkið sem engan enda virðist taka. Elena er miðaldra kvensjúkdómalæknir sem á í ástarsambandi við þunglynda sálfræðinginn Patrik. Sambandið virðist dauðadæmt frá upphafi en tekst ástinni að sigra að lokum? Aðalhlutverk: Karoliina Blackburn, Robin Svartström og Eino Kantee. Leikstjóri: Johanna Vuoksenmaa. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Norsk þáttaröð um fjóra vini sem allir eru auðugir, fagna velgengni í starfi og eiga fjölskyldur. Þeim leiðist þó og leita útgönguleiða úr daglegu lífi sínu, meðal annars með ofbeldi, eiturlyfjum og kynlífi. Þættirnir eru byggðir á sönnum frásögnum úr norskum fjármálaheimi. Aðalhlutverk: Simon J. Berger, Agnes Kittelsen, Pål Sverre Hagen, Tobias Santelmann og Jon Øigarden. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.