Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1992. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans í Reykjavík. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Jón Einar Jónsson, Júlíus Atlason og Jón Yngvi Jóhannsson. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Sveinn H. Guðmarsson, Ólafur Jóhannes Einarsson og Ágúst Hauksson.
Dönsk heimildarmynd frá 2020 í tveimur hlutum sem varpar ljósi á líf nokkurra samkynhneigðra manna sem rifja upp árin upp úr 1980. Lífið virtist brosa við þeim þegar fregnir tóku að berast af dularfullum og ólæknandi sjúkdómi sem virtist aðeins leggjast á homma.
Þættir um börn og ungmenni sem eiga annað móðurmál en íslensku og hafa hlotið Íslenskuverðlaun unga fólksins. Dagskrárgerð og umsjón: Hafsteinn Vilhelmsson.
Jeremiah Páll fæddist á Íslandi árið 2009. Hann ólst upp í Breiðholtinu hjá foreldrum sínum og systkinum. Móðurmál hans er filippseyska málið cebuano. Við förum í tónlistartíma með Jeremiah og kynnumst því hvernig er hægt að nýta tónlist til þess að læra nýtt tungumál.
Danskir spennuþættir fyrir alla fjölskylduna. Romeo og Holly komast yfir tímavél sem flytur þau aftur til miðalda. Þar hitta þau unga aðalsmanninn Laurentius sem vill svo til að er forfaðir Hollyar. Saman flækjast þau í örlagaríka atburðarás sem gæti kostað þau lífið. Þættirnir eru sjálfstætt framhald jóladagatalsins Tímaflakksins. Aðalhlutverk: Julian Brix, Lærke Krabbe De Waal og Caspar Phillipson.
Gamanmynd frá 2007 um ævintýri hins seinheppna Mr. Bean þegar hann vinnur ferð til borgarinnar Cannes í Frakklandi. Þar verður hann óvart valdur að því að ungur drengur verður viðskila við föður sinn og þarf að hjálpa feðgunum að sameinast á ný. Leikstjóri: Steve Bendelack. Aðalhlutverk: Rowan Atkinson, Willem Dafoe og Steve Pemberton.
Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Kristín hefur áhyggjur af því að móðir hennar taki ekki lyfin sín og Lilja finnur fyrir óþægilegri tengingu við heim ömmu sinnar. Þegar Kristín tekur þátt í björgunaraðgerð þarf hún að vinna náið með lögreglumanninum Ragnari, sem er gamall kærasti hennar.

Upptaka frá tónleikum Siggu Beinteins í Eldborg í maí 2022 þar sem söngkonan ástsæla fagnaði 40 ára söngafmæli og 60 ára afmæli. Sigríður Beinteinsdóttir hefur komið víða við á farsælum ferli sem ein vinsælasta söngkona landsins og fjölmörg laga hennar eru í flokki sígildra dægurperlna í íslenskri tónlist. Stjórn upptöku: Þór Freysson.
Breskt drama frá 2021 um Talithu Campbell, dóttur auðugs athafnamanns, sem er handtekin, grunuð um morð á skólasystur sinni. Lögmaðurinn Cleo Roberts er ráðin til að verja Talithu á meðan lögregla og saksóknari vinna hörðum höndum að því að sanna sekt hennar. Aðalhlutverk: Celine Buckens, Tracy Ifeachor og Joseph Payne. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Alexa fær Ellu til að gera svolítið hræðilegt. Olivia stendur með Ellu og kannski getur leyndarmálið fært þær nær hvor annarri aftur?
Bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Hlutirnir verða sífellt undarlegri í búðunum. Drekafluga verður að horfast í augu við persónulega djöfla til að bjarga sér og vinum sínum.
Icelandic drama series about Kristín, an emergency doctor who moves with her teenage daughter back to her parents' home in a small fishing village, following her own husband's affair. Kristín, who is grounded and rational, quickly realises she is out of her comfort zone communicating with her mother, a medium, and finds herself forced to look the ghosts of her past directly in the eye. Director: Eva Sigurðardóttir. Starring: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir, and Jói Jóhannsson. Not suitable for young children.
Kristín is worried that her mother is not taking her medication and Lilja feels an uncomfortable connection to the world of her grandmother. When Kristín takes part in a search & rescue mission, she needs to work closely with Ragnar, a policeman who is also her ex.