Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Ásakanir Ísraelsmanna um að 13 starfsmenn Palestínuflóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna hefðu tekið beinan eða óbeinan þátt í hryðjuverki Hamas í Ísrael 7. október leiddi til þess að Ísland var meðal 18 landa sem stöðvuðu fjárframlög sín til stofnunarinnar. Ísland setti auk annarra fram þá kröfur að Sameinuðu þjóðirnar rannsökuðu þessar ásakanir og gerðar yrðu umbætur til að tryggja hlutleysi stofnunarinnar. Í síðustu viku birtu Sameinuðu þjóðirnar svo skýrslu þessarar nefndar sem sett var á laggirnar til að kanna Hamastengslin og aðrar ásakanir Ísraelsmanna í garð stofnunarinnar. Jón Björgvinsson fjallaði um UNRWA í Kastljósi.
Hera Björk mun flytja framlag Íslands í Eurovision en þátttaka hennar í keppninni hefur verið umdeild vegna átaka Ísraels og Palestínu. Kastljós settist niður með Heru fyrir helgi og ræddi við hana um síðustu vikur, pólitíkina sem hefur blandast inn í keppnina og atriðið sjálft.
Það eru sennilega ekki margir sem taka upp á því byrja æfa sig á hjólabretti rétt tæplega fimmtugir. Óðinn Svan hitti hins vegar einn slíkan en auk þess að vera kominn á miðjan aldur er hann líka lögblindur.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar förum við að Þjóðminjasafninu og hittum Sigrúnu Eldjárn. Hún hefur skrifað og teiknað fallega og skemmtilega bók sem nefnist Sigrún á Safninu og byggist á æskuminningum hennar frá því að alast upp í húsi sem á þeim tíma var ekki bara þjóðminjasafn, heldur líka listasafn og sjóminjasafn. Þórarinn Eldjárn og Kristján Þórður Hrafnsson koma í þáttinn og segja frá 100 kvæðum en það er nýtt úrval ljóða Þórarins sem Kristján hefur valið. Þórarinn flytur eitt sitt frægasta kvæði af mikilli hind. Hjónin Kristín Jórunn Hjartardóttir og Egill Eðvarðsson ferðuðust um landið, hún stakk sér í sjó og synti á fjöldamörgum stöðum en Egill myndaði. Saman settu þau saman bókina Fær í flestan sjó en þar kynnumst við rúmlega áttatíu stöðum sem henta til sjósunds. Við fjöllum um hin svonefndu austfirsku skáld, en þeirra helst voru Einar Sigurðsson í Heydölum og Stefán Ólafsson í Vallanesi. Gagnrýnendur þáttarins ræða um Eimreiðarelítuna eftir Þorvald Logason og Horfinn heim en það er sjálfsævisaga Þrastar Ólafssonar. ,
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Árskóli, Dalvíkurskóli, Egilsstaðaskóli, Fellaskóli, Fellabæ, Grunnskóli Fjallabyggðar, Grenivíkurskóli, Hrafnagilsskóli, Húnaskóli, Varmahlíðarskóli og Borgarhólsskóli mæta til leiks.
Bolli og Bjalla bralla ýmislegt við gerð á þættinum Stundinni okkar.
Í þessum þætti setja Bolli og Bjalla á svið frægt verk eftir leikskáldið Vilhjálm Hristispjót, verkið Rómeó og Júlía. Í framhaldinu komast þau að því að það eru til miklu fleiri kyn og kynhneigðir en þau héldu.
Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.
Safn tónlistaratriða úr Stundinni okkar þar sem krakkar eru í sviðsljósinu.
Kór Kársnesskóla syngur lagið Ég á lítið fallegt ljós. Lag: höf. óþekktur. Raddsetning: Paul Schönneman. Texti: Þórunn Björnsdóttir. Stjórn: Þórunn Björnsdóttir. Undirleikur Marteinn H. Friðriksson.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Brekkuskóli, Fellaskóli, Giljaskóli, Glerárskóli, Grunnskólinn Austan Vatna, Lundarskóli, Naustaskóli, Síðuskóli og Þelamerkurskóli mæta til leiks.
Margrómuð eintöl Alans Bennetts í nýrri útgáfu. Meðal flytjenda eru Sarah Lancashire, Martin Freeman, Kristin Scott Thomas, Jodie Comer and Maxine Peake. Einleikirnir voru teknir upp á tímum útgöngubanns og samkomutakmarkana í Bretlandi vegna heimsfaraldurs COVID-19. Ný kynslóð fremstu leikara Breta flytja klassísk handrit Alans Bennetts.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Breskir sakamálaþættir frá 2023. Þrír nýliðar hefja störf í lögreglunni í Belfast. Álagið sem fylgir því að vera fyrsti viðbragðsaðili á vettvang er gríðarlegt og hætturnar miklar. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Martin McCann. Leikstjóri: Gilles Bannier. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sænskir spennuþættir um hermanninn Max Anger sem hefur sagt skilið við sænska herinn og fundið ástina með rússneskri samstarfskonu sinni, Pashie. Eftir að Pashie hverfur sporlaust þarf Max að leggja líf sitt í hættu til að leita hennar. Aðalhlutverk: Adam Lundgren, Johan Rheborg og Malin Crépin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.