Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.
Þættir frá 2011-2012 þar sem fjallað er um leiksýningar, kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og leikna sjónvarpsþætti. Leikmyndir, lýsing, hljóð og brellur kvikmynda og leikhúsa eru skoðuð og fylgst með framleiðslu einstakra kvikmyndaverka. Rýnt er í myndlist með upplýsandi og gagnrýnum hætti, nýjar leiksýningar fá ítarlega umfjöllun og gagnrýni og farið yfir feril einstakra listamanna.
Umsjónarmenn eru Þórhallur Gunnarsson, Sigríður Pétursdóttir, Vera Sölvadóttir og Guðmundur Oddur Magnússon. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Tillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.
Daglega lífið hjá Hælbein fjölskyldunni heldur áfram sinn vanagang. En þegar Blæja og Bára eiga í hlut þá er enginn dagur rólegur.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Sviðslistahátíðin Ungi 2. Krakkaskýring: Hvert fer ruslið?
Umsjón: Gunnnar Hrafn Kristjánsson
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Ásakanir Ísraelsmanna um að 13 starfsmenn Palestínuflóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna hefðu tekið beinan eða óbeinan þátt í hryðjuverki Hamas í Ísrael 7. október leiddi til þess að Ísland var meðal 18 landa sem stöðvuðu fjárframlög sín til stofnunarinnar. Ísland setti auk annarra fram þá kröfur að Sameinuðu þjóðirnar rannsökuðu þessar ásakanir og gerðar yrðu umbætur til að tryggja hlutleysi stofnunarinnar. Í síðustu viku birtu Sameinuðu þjóðirnar svo skýrslu þessarar nefndar sem sett var á laggirnar til að kanna Hamastengslin og aðrar ásakanir Ísraelsmanna í garð stofnunarinnar. Jón Björgvinsson fjallaði um UNRWA í Kastljósi.
Hera Björk mun flytja framlag Íslands í Eurovision en þátttaka hennar í keppninni hefur verið umdeild vegna átaka Ísraels og Palestínu. Kastljós settist niður með Heru fyrir helgi og ræddi við hana um síðustu vikur, pólitíkina sem hefur blandast inn í keppnina og atriðið sjálft.
Það eru sennilega ekki margir sem taka upp á því byrja æfa sig á hjólabretti rétt tæplega fimmtugir. Óðinn Svan hitti hins vegar einn slíkan en auk þess að vera kominn á miðjan aldur er hann líka lögblindur.
Breskir heimildarþættir í tveimur hlutum þar sem vísindamenn kynna hvaða afleiðingar það hefur ef hlýnun jarðar fer yfir 1,5 gráður. Farið er yfir þær tækninýjungar sem gætu spornað við frekari hlýnun og hvernig hinn almenni borgari getur orðið að liði.
Finnskir dramaþættir frá 2023 um fólk á miðjum aldri sem fæst við afleiðingar breytingaskeiðsins og foreldrahlutverkið sem engan enda virðist taka. Elena er miðaldra kvensjúkdómalæknir sem á í ástarsambandi við þunglynda sálfræðinginn Patrik. Sambandið virðist dauðadæmt frá upphafi en tekst ástinni að sigra að lokum? Aðalhlutverk: Karoliina Blackburn, Robin Svartström og Eino Kantee. Leikstjóri: Johanna Vuoksenmaa. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Norsk þáttaröð um fjóra vini sem allir eru auðugir, fagna velgengni í starfi og eiga fjölskyldur. Þeim leiðist þó og leita útgönguleiða úr daglegu lífi sínu, meðal annars með ofbeldi, eiturlyfjum og kynlífi. Þættirnir eru byggðir á sönnum frásögnum úr norskum fjármálaheimi. Aðalhlutverk: Simon J. Berger, Agnes Kittelsen, Pål Sverre Hagen, Tobias Santelmann og Jon Øigarden. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Sviðslistahátíðin Ungi 2. Krakkaskýring: Hvert fer ruslið?
Umsjón: Gunnnar Hrafn Kristjánsson
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.