

Þriðja þáttaröðin um vinalega hundinn Sám og krílin sem vinna sér inn merki á leikskólanum hans.

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Það er rólegur morgunn þar til Eddi strútapabbi er vakinn upp við læti - Ólympíuleikar Kráku eru að hefjast. Dóttir hans er að gera sig tilbúna í stangarstökkið og hann verður að stöðva hana áður en hún slasar sig.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.

Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Skemmtilegir þættir um hina ástsælu Múmínálfa Tove Jansson og ævintýri þeirra.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.

Líflegir barnaþættir um stúlku sem getur læknað leikföng með hjálp frá uppstoppuðum vinum sínum sem öðlast líf í gegnum töfra hlustunarpípu hennar.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Millivíddargaldrahliðið spýtir Hallgrími, Alberti, Brynhildi og Guðrúnu upp á sker á milli eyjanna tveggja. Lið Hallgríms bjargar honum og hann handtekur Albert. Guðrún kemur úr göngunum spillt af svartagaldri. Svart frost breiðist út í kringum hana þegar hún fer að Hallgrímkirkjuturni. Ormhildur, Álfur og Kisi snúa aftur til Breiðholtseyju í þyrlu. Haförninn bjargar þyrlunni. Í fjarska sjá þau Guðrúnu verða altekna af myrkri.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Vilhjálmur B. Bragason, Hjalti Rúnar Jónsson, Gunnlaugur Bjarnason og Þorgerður María Þorbjarnardóttir.

Dóri DNA spjallar við marga af virkustu grínistum landsins og spyr hvort hægt sé að lifa á gríni einu saman. Hver er galdurinn við húmor og þarf maður að æfa sig í fyndni? Gestir Dóra eru meðal annarra Anna Svava, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóra Jóhannsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir, Steindi Jr. og Hugleikur Dagsson. Dagskrárgerð: Gaukur Úlfarsson.
Í sjötta þætti fara Dóri og Jón Gnarr í pylsubúð og Dóri hjálpar Sóla Hólm að setja saman IKEA sófa. Einnig kíkir hann á fyndnasta háskólanemann.

Norsk gamanþáttaröð tekin upp í Karls Jóhanns-götu í Osló. Þar getur næstum allt gerst og fólkið á götunni lendir óvart í sjónvarpinu. Umsjónarmenn eru Erik Solbakken og Hasse Hope. e.

Þættir um líf ungra dansara í Konunglega danska ballettinum.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Árið 2016 voru fimmtíu ár síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og á þessum fimmtíu árum hefur það sýnt ógrynni af efni allstaðar að af landinu. Í 50 ár eru níu sjónvarpsþættir sem sendir voru út frá vel völdum stöðum á landinu sumarið 2016 þar sem rifjaðar voru upp sögur og svipmyndir af sjónvarpssögu viðkomandi landshluta. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Vestmannaeyjar í 50 ár er annar þátturinn af níu þar sem Guðrún Gunnarsdóttir og Gísli Einasson flakka um landið og rifja upp sjónvarpsefni frá síðustu fimmtíu árum. Í Vestmannaeyjum rifja þau upp komu Keikós, Polla og Pæjumót í fótbolta og beinar útsendingar frá eldgosi. Þá sjáum við brot úr vinsælu sjónvarpsþáttum Sigla himinfley. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.

Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Í þessum þætti ræðir Jónas Sen við Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara.

Norskur myndaflokkur þar sem fylgst er með venjulegu fólki sem er svo ástríðufullt í áhugamálum sínum að það liggur við brjálæði. Þáttastjórnandinn Are Sande Olsen tekur viðtöl við fólk með ótrúlegustu áhugamál og skoðar þau ofan í kjölinn.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Spánar og Sádi-Arabíu á HM karla í fótbolta.


Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Holiday
Flytjandi: Valborg Ólafs
Höfundar: Valborg Ólafsdóttir, Orri Guðmundsson, Baldvin Freyr Þorsteinsson og Elvar Bragi Kristjónsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Í þættinum heimsækjum við Hlíðarenda og minningarlund Nínu Sæmundsson. Við ræðum einnig um Þorstein Erlingsson skáld, skoðum Gluggafoss og trjásafnið í Múlakoti.

Bresk leikin þáttaröð frá 2024. Fátæk fjölskylda af verkamannastétt verður vellauðug á svipstundu þökk sé róttækri viðskiptahugmynd þeirra. Þau kveðja slorið og flytja á sveitasetur þar sem þau þurfa að fóta sig í framandi heimi yfirstéttarinnar í Yorkshire í lok 19. aldar. Þættirnir eru byggðir á metsölubókum eftir C. L. Skelton. Aðalhlutverk: Claire Cooper, Liam McMahon og Shannon Lavelle.

Draumkennd spennumynd frá 2001 í leikstjórn Davids Lynch. Betty, ung leikkona í Los Angeles, kynnist hinni dularfullu Ritu. Rita þjáist af minnisleysi í kjölfar bílslyss og saman reyna þær að leysa ráðgátuna um hver hún er í raun og veru. Þær komast þó fljótt að því að ekki er allt sem sýnist. Aðalhlutverk: Naomi Watts, Laura Harring og Justin Theroux. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Stuttmynd í leikstjórn Hlyns Pálmasonar. Ingvar E. Sigurðsson er í hlutverki sérviturs myndlistarmanns sem kýs að búa í einangrun og einbeitir sér eingöngu að starfi sínu. Sonur hans birtist óvænt við heimili hans og kemur lífi hans og listköpun úr jafnvægi. Önnur hlutverk: Elliott Crosset Hove og Ida Cæcilie Rasmussen.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Nýja-Sjálands og Egyptalands á HM karla í fótbolta.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Belgíu og Íran á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Belgíu og Íran á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Úrúgvæ og Grænhöfðaeyja á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.