09:38
Ormhildarsaga
24. Frostið svarta

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.

Millivíddargaldrahliðið spýtir Hallgrími, Alberti, Brynhildi og Guðrúnu upp á sker á milli eyjanna tveggja. Lið Hallgríms bjargar honum og hann handtekur Albert. Guðrún kemur úr göngunum spillt af svartagaldri. Svart frost breiðist út í kringum hana þegar hún fer að Hallgrímkirkjuturni. Ormhildur, Álfur og Kisi snúa aftur til Breiðholtseyju í þyrlu. Haförninn bjargar þyrlunni. Í fjarska sjá þau Guðrúnu verða altekna af myrkri.

Er aðgengilegt til 05. júlí 2027.
Lengd: 21 mín.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Endursýnt.
,