Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Starfsfólk félagsmiðstöðva segist taka eftir aukinni drykkju ungmenna en aukninguna er ekki að sjá í niðurstöðum Íslensku æskulýðrannsóknarinnar. Rætt um normalíseringu á áfengisneyslu, íslenska forvarnamódelið og fleira við Ragný Þóru Guðjohnsen, sem er í forsvari fyrir æskulýðsrannsóknina og Svövu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Samfés.
Í þættinum fórum við í hesthús sem er ekki bara hestshús heldur líka sálfræðistofa. Þorkatla Elín Sigurðardóttir sálfræðingur hefur sérhæft sig í því að nýta dýr í meðferðarvinnu.
Einnig rætt við Ólaf Ásgeirsson leikara um lífið, leiklistina og grínið. Hann hefur slegið í gegn í sýningum á borð við Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar og er einn höfunda áramótaskaupsins í ár.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundur og dómair: Stefán Pálsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sérútgáfa Útsvars þar sem vinningslið Gettu betur keppir við vinningslið Útsvars.
Umsjónarmenn: Björn Bragi Arnarsson og Þóra Arnórsdóttir.
Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.
Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Spaugstofan setur upp skoplega verðlaunahátíð þar sem stjórnmálamenn, fjölmiðlafólk og poppstjörnur mæta á rauða dregilinn – og enginn sleppur við spaugilegar tilnefningar og beitta ádeilu.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna COP30, var haldin í vikunni sem leið í fjarveru Bandaríkjanna. Í lokayfirlýsingu hennar var samþykkt að ríkari þjóðir myndu þrefalda fjármagn til að aðstoða þjóðum sem hafa orðið verst fyrir barðinu á hlýnun jarðar. Engin samstaða náðist hins vegar um að draga úr jarðefnaeldsneyti. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, er gestur Silfursins.
Á vettvangi dagsins rýnum við í hið pólitíska landslag í ljósi kólnandi hagkerfis með þeim Andreu Sigurðardóttur, blaðamanni á Morgunblaðinu, Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur blaðamanni og Þórhalli Gunnarssyni, almannatengli.
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson yfirheyrir íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Öll trúum við einhverju, þó við trúum á mismunandi hluti, aðferðir og fyrirbrigði - jafnvel bara okkur sjálf. Við skoðum hvernig trúin brýst fram í tónlistinni og kallar fram fegurð og fagra hljóma.

Heimildarþáttur um ungmenni sem flytja inn á elliheimili í Helsinki. Þar fá þau að búa og borga lága leigu gegn því að umgangast eldri borgarana og veita þeim félagsskap.


Hrúturinn Hreinn og félagar hans á bóndabænum lenda í mörgum skemmtilegum ævintýrum.

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.

Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Krakkafréttir dagsins: 1. Innsendingar í Krakkaskaupið 2. Stóra Legó-keppnin. Umsjón: Ari Páll Karlsson.

Fyrsta þáttaröð Með okkar augum, þar sem fólk með þroskahömlun skoðar málefni líðandi stundar með sínum augum og spyr þeirra spurninga sem því eru hugleiknastar hverju sinni. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Þættir frá 2011.

Íþróttafréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Formaður fjárlaganefndar Alþingis geldur varhug við nýrri fjármögnunarleið á húsnæðismarkaði. Sex fjárfestingarsjóðir á vegum byggingarfélaga hafa verið stofnaðir á undanförnum mánuðum en .eir bjóðast til að gerast meðeigendur kaupenda að íbúðum á vegum viðkomandi félaga. Rannveig Eir Einarsdóttir, forstjóri Reir verks telur þetta fyrirkomulag auðvelda fólki að komast á húsnæðismarkaðinn og gera byggingamarkaðinn fyrirsjáanlegri. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður fjárlaganefndar, telur að þetta ýti undir verðbólgu og kallar eftir regluverki. Þau fóru yfir málin í Kastljósi.
Morðmál skekur Vestmannaeyjar í spennuþáttaseríunni Heimaey, sem hóf nýverið göngu sína á Sjónvarpi Símans. Við litum við á frumsýningu þáttanna.
Heimildarþáttur um langvinnt covid, sjúkdómsástand sem milljónir einstaklinga víða um heim glíma við í kjölfar COVID-19 sjúkdómsins. Einkennin eru afar einstaklingsbundin, fjölbreytt og geta haft áhrif á mörg líffæri. Í mörgum tilfellum getur langvinnt covid leitt til ME, alvarlegs taugasjúkdóms sem engin lækning hefur enn fundist við. Í þættinum er fjallað um stöðuna hvað varðar læknavísindin, félagslegu úrræðin og reynslu einstaklinga af þessum sjúkdómum. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson.

Stuttir þættir um sögurnar á bak við áhugaverðar ljósmyndir. Í hverjum þætti er fjallað um eina ljósmynd og sögu hennar – hvað var að gerast þegar myndin var tekin, hverjar voru aðstæður fólksins á ljósmyndinni og hvert er samhengið við nútímann? Leikstjóri: Þorsteinn J. Framleiðsla: Þetta líf, þetta líf.
Friðrik Brekkan vann hjá Menningarstofnun Bandaríkjanna við undirbúning leiðtogafundarins í Höfða árið 1986. Hann segir frá aðdraganda þess að ákveðið var að halda fundinn í Reykjavík og frá undirbúningi og framkvæmd hans.

Matgæðingarnir og bræðurnir Adam og James Price töfra fram kræsingar við öll tækifæri. Hér útbúa þeir þakkagjörðarkvöldverð.
Breskir sakamálaþættir um lögregluna í Belfast. Álagið sem fylgir því að vera fyrsti viðbragðsaðili á vettvang er gríðarlegt og hætturnar miklar. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Martin McCann. Leikstjóri: Gilles Bannier. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Sannsögulegir úkraínskir dramaþættir frá 2024. Sálfræðingurinn Lydia aðstoðar samborgara sína fyrstu vikurnar eftir innrás Rússa í Úkraínu. Hún ekur þeim í öruggt skjól og hlýðir á átakanlegar sögur þeirra. Aðalhlutverk: Anastasiya Karpenko, Igor Koltovskyy og Nadiya Levchenko. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarmynd frá 2023 um Fritz Kuhn, þýskan innflytjanda sem markaðssetti sig sem fulltrúa Hitlers í Bandaríkjunum á fjórða áratugnum. Hann laðaði að sér mikinn fjölda fylgjenda og hvorki bandaríska alríkislögreglan né Hitler sjálfur gátu stöðvað hann. Leikstjóri: Annette Baumeister. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.