13:40
Kastljós
Unglingadrykkja, sálfræðingur í hesthúsi og Ólafur Ásgeirsson

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Starfsfólk félagsmiðstöðva segist taka eftir aukinni drykkju ungmenna en aukninguna er ekki að sjá í niðurstöðum Íslensku æskulýðrannsóknarinnar. Rætt um normalíseringu á áfengisneyslu, íslenska forvarnamódelið og fleira við Ragný Þóru Guðjohnsen, sem er í forsvari fyrir æskulýðsrannsóknina og Svövu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Samfés.

Í þættinum fórum við í hesthús sem er ekki bara hestshús heldur líka sálfræðistofa. Þorkatla Elín Sigurðardóttir sálfræðingur hefur sérhæft sig í því að nýta dýr í meðferðarvinnu.

Einnig rætt við Ólaf Ásgeirsson leikara um lífið, leiklistina og grínið. Hann hefur slegið í gegn í sýningum á borð við Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar og er einn höfunda áramótaskaupsins í ár.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,