

Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.

Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!

Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.

Stærðfræðiofurhetjurnar Millý, Geó og Bói hjálpa krökkum að læra tölur, form og mynstur.

Elías er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.

Fallegir teiknimyndaþættir um óvenjulega vináttu bjarnarins Ernests og músarinnar Célestine.

Fjörugir þættir um sjóræningjastelpuna Rán og Sævar sem flýgur sinni eigin sjóflugvél.

Kári, Villi og Hanna lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Fjörugir teiknimyndaþættir um ref, tvö villisvín og fugl sem eru orðin þreytt á að lifa villt í náttúrunni og verða sér úti um búninga til að dulbúast sem venjuleg gæludýr.

Hvernig ætli sumir hlutir sem við erum mjög vön hafi verið fundnir upp? Stórfurðulegu steinaldarmennirnir sýna okkur sínar misheppnuðu tilraunir.

Vinirnir Randalín og Mundi lenda í miklum ævintýrum í jólamánuðinum, gera góðverk og óvart skemmdarverk. Þau leysa ráðgátu um grunsamlegan nágranna og hjálpa hælisleitendum á flótta, leita aðstoðar spákonu sem á kristalskúlu, fást við nágranna sem á snák og eltast við jólasvein sem dúkkar upp á ólíklegustu stöðum. Leikstjórn: Silja Hauksdóttir og ILmur Kristjánsdóttir. Meðal leikenda eru: Kría Burgess, Gunnar Erik Snorrason, Birta Hall, Ægir Chang Hlésson, Hilmir Snær Guðnason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirssdóttir, Jörundur Ragnarsson og Harpa Arnardóttir.
Heima hjá Grétu Hansen borða Randalín og Mundi yfir sig af gömlu nammi og komast að því að framundan eru dularfull verkefni sem þeim ber að leysa með hjálp enn dularfyllri verkfæra.
Leitin að jólastjörnunni er hafin. Börn 14 ára og yngri syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar og keppast um að verða jólastjarnan 2023. Umsjón: Kristinn Óli Haraldsson og Katla Þórudóttir Njálsdóttir. Upptökustjórn: Þór Freysson.
Í þessum þætti syngja jólastjörnurnar Embla Bríet Einarsdóttir, Írena Rut Jónsdóttir, Jón Benedikt Hjaltason, Unnur Signý Aronsdóttir og Elijah Kristinn Tindsson.

Skemmtiþættir fyrir alla fjölskylduna þar sem stöllurnar í Heimilistónum, þær Elva, Katla, Lolla og Vigdís, bjóða áhorfendum í heimsókn til sín í Heimilistónahúsið á aðventunni. Í þáttunum kennir ýmissa grasa og fléttast þar saman tónlist, húsráð, leikin atriði, föndurhorn, gógó-danskennsla og margt fleira jólalegt. Í hverjum þætti er einn aðalgestur og eru þeir ekki af lakari endanum: Katrín Jakobsdóttir, Baltasar Kormákur, Svanhildur Jakobsdóttir og Valdimar. Skvísurnar í Heimilistónum tryggðu sér krafta nokkurra landsþekktra leikara sem bregða sér í hin ýmsu gervi. Þeir eru: Gói Karlsson, María Heba Þorkelsdóttir, Oddur Júlíusson, Sigurður Þór Óskarsson og Þröstur Leó Gunnarsson. Leikstjórn og dagskrárgerð: Kristófer Dignus.

Þáttaröð um íslenska tónlist í umsjón Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts eru Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar og þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.
Textað á síðu 888 í Textavarpi.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræðir við alþingismennina Hildi Sverrisdóttur, Kristrúnu Frostadóttur, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um helstu viðfangsefni Alþingis. Í síðari hluta þáttarins koma viðskiptablaðamennirnir Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, og ræða um sviptingar um Marel.

Sjö döff nemendur frá fjórum Norðurlandanna hefja nám í leiklistarskóla í Stokkhólmi. Í þessum sænsku heimildarþáttum sjáum við þau glíma við verkefni á borð við slæman fjárhag, líkama sinn, sjálfsmynd, rödd og ekki síst tungumálið og svo spurninguna um hvað þarf til að verða góður leikari.

Danskur heimildarþáttur um samtímaljósmyndun. Daglega myndum við líf okkar og birtum á Instagram, Facebook og Snapchat. Um leið og gefin eru góð ráð til að bæta ljósmyndatæknina er fylgst með fimm efnilegum ljósmyndurum keppast um titilinn Besti ljósmyndari ársins.

Þættir frá 2014 þar sem íslenskar hljómsveitir og tónlistarmenn flytja lög í myndveri RÚV. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson og upptöku stjórnaði Helgi Jóhannesson.
Valdimar, GusGus, Margrét Eir og Páll Rósinkrans og Leoncie.

Eftir að hafa kynnst menningu rappara og uppistandara er kominn tími til að kynnast nördum í Reykjavík. Dóri DNA fer á stúfana og kemst að því hvers vegna nördar eiga eftir að erfa heiminn. Dagskrárgerð: Gaukur Úlfarsson.
Í þessum þætti prófar Dóri DNA spunaspilið Dungeons and Dragons og þarf að kljást við dreka í dýflissum með ímyndunaraflið eitt að vopni.

Heimildarþættir frá 2022. Leikarinn Martin Clunes heldur á vit ævintýranna í leit að hinu eina sanna Kyrrahafi. Ferðalagið, sem er innblásið af Kontiki-leiðangrinum, hefst í Frönsku-Pólýnesíu og endar á Galapagoseyjum.

Heimildarþáttaröð í fjórum hlutum um samísku systurnar Maxida och Mimie Märak en báðar eru þær virkar í sænsku rappsenunni og berjast jafnframt ötulega fyrir réttindum Sama.

Matreiðsluþættir þar sem Sveinn Kjartansson leiðir áhorfendur um ævintýraslóðir bragðlaukanna. Víða verður leitað fanga og unnið með margs konar hráefni sem finna má á landi sem á sjó en þó aðallega í verslunum. Sveinn gefur góðar hugmyndir um margs konar rétti til að hafa á borðum jafnt til fagnaðar sem hversdags. Eins fær hann góða gesti, matreiðir ýmislegt lostæti, heimsækir ástríðukokka, fólk sem lumar á gómsætum uppskriftum og fær hollráð hjá öðrum. Dagskrárgerð: Janus Bragi Jakobsson.

Danskir þættir um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.

Bolli og Bjalla eyða Stundinni okkar úr manna minnum og þurfa að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að hún gleymist að eilífu.
Þau ferðast í gegnum sögu Stundarinnar okkar og hitta þar fyrrverandi þáttastjórnendur, þá Gunna og Felix, Björgvin Franz, Sigyn Blöndal, Flakkarann og fleiri góðkunningja.
Ætli Bolla og Bjöllu takist að bjarga Stundinni okkar fyrir jól eða ætli þau eyði jólunum líka?
Bolli og Bjalla eru föst á gangi Stundarinnar okkar eftir að hafa óskað sér að hún væri ekki til. En hvar er galdrabókin hans afa Disks?

Söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir er mikið jólabarn. Hér leiðir hún áhorfendur í gegnum jólaundirbúninginn eins og henni einni er lagið, föndrar jólaskraut, bakar sprengipiparkökur, býr til handgerð spil og margt fleira. Dagskrárgerð: Jana María Guðmundsdóttir og Sindri Bergmann Þórarinsson.

Danskt jóladagatal um hina 13 ára Sofie sem á sér þann draum heitastan að sameina fjölskyldu sína um jólin, en foreldrar hennar höfðu skilið nokkru áður. Með aðstoð tímavélar ferðast Sofie aftur í tímann þar sem hún ætlar að hafa áhrif á örlagavefinn, en þegar þangað er komið mætir hún óvæntum hindrunum. Aðalhlutverk: Bebiane Ivalo Kreutzmann og Hannibal Harbo Rasmussen.
Þorri og Þura ætla að undirbúa jólin saman, taka til, þrífa og pakka inn jólagjöfum. Þau eru alveg að springa úr jólaspenningi og skoða auglýsingabæklinga verslana sem flæða úr póstkössunum þeirra. Innan um alla bæklinganna finna þau dularfult bréf. Einhver hefur stolið öllu jólaskrautinu og gjöfunum þeirra og þar af leiðandi, að mati Þorra og Þuru, verða engin jól. Eða hvað?
Allar jólagjafirnar og jólaskrautið hafa horfið skyndilega. Þorri og Þura eru ráðalaus, þau reyna ýmislegt til að endurheimta gjafirnar og skrautið en ekkert gengur. Hvað verður um jólin?


Íþróttafréttir.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Í Landanum í kvöld heimsækjum við Sigurhæðir, við kynnumst tilraunum með raforku, hittum ungan Trabanteiganda og förum á hljómsveitaræfingu með kraftmiklu kvennabandi.
Andri Freyr Viðarsson og Dóra Takefusa fara yfir 50 ára skemmtistaða- og djammmenningu Reykjavíkur, allt frá því að Glaumbær brann til dagsins í dag. Þau fá til sín fjölbreyttan hóp viðmælanda sem tengjast næturlífinu á einn eða annan hátt og rifja upp skemmtilegar staðreyndir, sögur og minningar.
Fjallað er um Prikið, vöggu íslenska rappsins. VIP-klúbbar á borð við Austur og B5 líta dagsins ljós og ný kynslóð tjúttara tekur við keflinu.

Heimildarmynd í tveimur hlutum. Árið 2018 fögnuðu Íslendingar 100 ára fullveldisafmæli. Sjálfstæðisbarátta Íslendinga hafði verið rekin allt frá miðri 19. öld. Í skrefum fékkst heimastjórn, fullveldi og árið 1944 lauk loks konungssambandi við Danmörku og lýðveldi var stofnað á Íslandi. Það reyndist Íslendingum ekki alltaf einfalt að búa á fátækasta og minnsta landi í Evrópu. Þjóðin bar þó höfuðið hátt og tók sitt pláss í samfélagi þjóða.
Fjallað er um árin 1939-2018.

Tíunda þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.

Norsk kvikmynd frá 2019 um Önju sem greinist með ólæknandi krabbamein skömmu fyrir jól og er sagt að hún eigi aðeins nokkra mánuði eftir ólifaða. Samband hennar við sambýlismann hennar, Thomas, stendur ekki styrkum fótum og nú reynir á þau að standa saman, bæði hvors annars og fjölskyldunnar vegna. Leikstjóri: Maria Sødahl. Aðalhlutverk: Andrea Bræin Hovig, Stellan Skarsgård og Elli Rhiannon Müller Osborne.

Beinar útsendingar frá HM kvenna í handbolta.
Bein útsending frá leik Brasilíu og Spánar á HM kvenna í handbolta.

Beinar útsendingar frá HM kvenna í handbolta.
Bein útsending frá leik Noregs og Suður-Kóreu á HM kvenna í handbolta.