09:39
Stundin okkar-Tökum á loft V
Eldur og ís... og smá tyggjó

Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!

Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.

Fyrsti vetrardagur rennur upp en Loft og Sjón hafa engan tíma til að slaka á – fjársjóðsleitin heldur áfram! Ný og dularfull vísbending reynist þeim þó ofviða og þau leita til Áróru eftir hjálp. Í sumarbúðunum er allt annað á seyði þar sem krakkarnir keppa í kappáti og töfra svo fram dýrindis súkkulaðibúðing.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Dagskrárliðurinn er textaður
,