Íslenskir heimildaþættir frá 2026. Í október 1986 ákváðu Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna að funda í Reykjavík, öllum að óvörum. Í þáttunum er fjallað um hvernig Íslendingar lögðu allt undir við að halda leiðtogafund risaveldanna með aðeins tólf daga fyrirvara. Hvaða áhrif hafði fundurinn á sálarlíf og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og hverjar voru afleiðingar hans? Leikstjóri: Árni Þór Jónsson. Framleiðsla: Republik.
Þúsundir Reykvíkinga vinna baki brotnu allan sólarhringinn við að undirbúa leiðtogafundinn en fulltrúar risaveldanna hafa ekki enn náð niðurstöðu um fundarstað. Fréttamenn ónáða tvífara Reagan í Fossvoginum, íslensk stjórnvöld eru sökuð um gyðingahatur og Hófí heillar heimspressuna. Allt er á suðupunkti.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
