
Íslenskir heimildaþættir frá 2026. Í október 1986 ákváðu Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna að funda í Reykjavík, öllum að óvörum. Í þáttunum er fjallað um hvernig Íslendingar lögðu allt undir við að halda leiðtogafund risaveldanna með aðeins tólf daga fyrirvara. Hvaða áhrif hafði fundurinn á sálarlíf og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og hverjar voru afleiðingar hans? Leikstjóri: Árni Þór Jónsson. Framleiðsla: Republik.
Leiðtogarnir eru mættir til landsins og loka sig inni í Höfða. Rússar koma Bandaríkjamönnum á óvart með róttækum tillögum um kjarnorkumál sem gætu skipt sköpum fyrir heimsfrið. Fyrir utan Höfða eru taugar öryggisvarða þandar, fréttir berast af hryðjuverkamönnum á leið til Íslands og úti á Faxaflóa fer fram sjóorrusta.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi