Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Það gekk óneitanlega nokkuð á þegar íslensk yfirvöld tóku yfir Bandero, skip hvalavina, og kyrrsettu í höfn hérlendis. Paul Watson og lögmenn hans segja að lög hafi verið brotin, skipið sé einnig vel haffært. Kastljós fór um borð í skipið í fylgd með skipaeftirlitsmanni.
Einnig rætt við Patrek Jaime sem hefur undanfarnar vikur og mánuði dýft sér á bólakaf í ESB-umræðuna, með gerð Hlaðvarpsþáttanna Sama viðtalið um ESB.

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1993. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Álfheiður Ingadóttir. Sigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans á Akureyri. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Andrés Andrésson, Hrafnkell Orri Egilsson og Jón Einar Jónsson. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Baldur Helgi Benjamínsson, Pálmi Óskarsson og Kristbjörn Gunnarsson.

Sænskir matreiðsluþættir frá 2023. Grínistinn David Batra og fréttakonan Malin Mendel ætla að opna veitingastað á Indlandi. Þau ákveða hvað verður á matseðlinum með því að prófa sig áfram í að elda klassíska indverska rétti og gamlar fjölskylduuppskriftir.

EM karla í fimleikum í Króatíu.
Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn Guðmundsson ferðast með vini sínum, Janusi Braga Jakobssyni, og eldar fyrir hann. Að þessu sinni fara þeir félagar um Austurland þar sem Kristinn þykist vera á heimavelli því faðir hans er fæddur og uppalinn á Eskifirði. Janus er aftur á móti nánast eins og algjör túristi. Þeir hitta alls kyns fólk og lenda í ýmsu skakkaföllum en alltaf lenda þeir á fótunum og fá sér í gogginn.
Kristinn og Janus heimsækja Nordic Wasabi, kynnast því hvernig wasabi-planta verður til á Austurlandi og fá að smakka. Loks skella þeir sér inn í Loðmundarfjörð og þar verður sko veisla.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Bandarísk fjölskyldumynd frá 1998. Madeline er munaðarlaus og býr í heimavistarskóla í París. Þegar til stendur að loka skólanum og selja húsið grípur hún til sinna ráða. Leikstjóri: Daisy von Scherler Mayer. Aðalhlutverk: Hatty Jones, Frances McDormand og Nigel Hawthorne.
Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Kristín hefur áhyggjur af Hönnu, hjúkrunarfræðingnum á heilsugæslunni, þegar hún tekur eftir að Hanna er með marbletti sem hún reynir að fela. Eiginmaður Kristínar birtist óvænt og segir henni leyndarmál sem neyðir hana til að horfast í augu við óþæginlegan sannleika.

Margverðlaunað drama frá 2007 byggt á samnefndri skáldsögu eftir Ian McEwan. Í sögunni segir frá því hvernig lygi þrettán ára stúlku leikur líf miðstéttarfjölskyldu á Englandi í sjötíu ár. Leikstjóri er Joe Wright og meðal leikenda eru James McAvoy, Keira Knightley, Brenda Blethyn, Julia West, Harriet Walter og Vanessa Redgrave.

Breskur sakamálaþáttur um hinn slungna séra Brown sem er ekki bara kaþólskur prestur heldur leysir glæpsamleg mál á milli kirkjuathafna. Aðalhlutverk: Mark Williams.


Fjórða serían af Hönnunarstirnunum. Nico og Andrés eru mættir einu sinni enn með ný og skemmtileg verkefni og nýja keppendur.
Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Olivia og Nico hrinda af stað nýju trendi í bekkjarspjallinu. Það er gott að hafa einhvern til þess að treysta á og skemmta sér með. Kannski þarf Olivia ekki á Ellu að halda eftir allt?
Bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Krakkarnir leita eftir nýjum leiðum til dægrastyttingar í nýja umhverfi sínu á meðan Kaz leitar af leið út.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Icelandic drama series about Kristín, an emergency doctor who moves with her teenage daughter back to her parents' home in a small fishing village, following her own husband's affair. Kristín, who is grounded and rational, quickly realises she is out of her comfort zone communicating with her mother, a medium, and finds herself forced to look the ghosts of her past directly in the eye. Director: Eva Sigurðardóttir. Starring: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir, and Jói Jóhannsson. Not suitable for young children.
Kristín is worried about Hanna, the nurse at the healthcare centre, when she notices Hanna has a bruise she is trying to hide. Kristín's husband appears in the village unannounced and tells her a secret that forces her to confront an uncomfortable truth.