Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Í Kastljósi kvöldsins var fjallað um veðurfyrirbærið El-Niño. Vísindamenn telja að El-Niño atburðurinn í vetur verði sá kröftugasti í manna minnum. Rætt var við Mikael Allan Mikaelsson sérfræðing í loftslagsmálum. Í setti var rætt við Önnu Huldu Ólafsdóttur skrifstofurstjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands um hvar Ísland sendur þegar kemur að því að búa þjóðina undir loftslagsbreytingar. Guðrún Sóley settist þá niður með Elísabetu Ronaldsdóttur kvikmyndaklippara sem gerir það gott í Hollywood.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
