20:15
Úti III (4 af 6)
Yfir Skeiðarárjökul

Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.

Lagt er upp frá Núpstaðaskógi og haldið yfir Skeiðarárjökul í átt að Skaftafellsfjöllum. Þetta er löng og krefjandi gönguleið, með allt á bakinu, um eitt tilkomumesta jökul- og fjalllendi landsins. Leiðin er aðeins á færi fárra hópa á hverju ári. Á jöklinum blasir við síbreytilegur heimur sprungna, jökulalda og svartra sanda, umlukinn hæstu fjöllum Íslands.

Er aðgengilegt til 09. desember 2026.
Lengd: 20 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,