
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er hræddur um að ofur segullinn sem dóttir hans býr til muni laða að sér alla þungu hlutina á heimilinu og valda slysi! Hvernig getur hann stoppað hana?
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Líflegir barnaþættir um stúlku sem getur læknað leikföng með hjálp frá uppstoppuðum vinum sínum sem öðlast líf í gegnum töfra hlustunarpípu hennar.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn tekst á við Finngálkn og hittir ísbjarnakónginn Björn. Til að vinna upp tíma sem tapaðist í gildrunni í konungsríki nykranna smíða þau fleka til að komast yfir hafið að Heklu. Misheppnaður ljósagaldur Vakurs veldur fyndinni uppákomu á Árbæjareyju.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf á köldustu svæðum jarðar. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2 á sama tíma.
Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Íslensk matarmenning blómstrar en það tók langan tíma að komast svo langt. Gestastjórnendur eru Saga Garðarsdóttir og Sandra Barilli.

Breskir heimildarþættir frá 2023 um gullaldartíma tennisins þegar tennisgoðsagnirnar Ashe, McEnroe, Borg, King, Navratilova og Evert réðu ríkjum.

Leikir í Meistaradeild kvenna í fótbolta.
Leikur Barcelona og Bayern Munchen í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar fjöllum við um rithöfundinn Jón Trausta sem Halldór Laxness kallaði einn mesta undramann íslenskrar sagnalistar. Jón Trausti var fæddur í örbirgð, vann hörðum höndum allt sitt líf, skrifaði epískar skáldsögur sem nutu mikilla vinsælda en andaðist í spænsku veikinni 1918. Guðrún Nordal ræðir við okkur um bókina Höfundur verður til en þar er fjallað um ævi og störf Jóns Trausta. Páll Ásgeir Ásgeirsson er ötull ferðamaður og ferðabókahöfundur - við hittum hann í slagveðursrigningu og tölum um bókina Ísland 175. Skáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir spjallar við okkur og fer með kvæði úr nýrri bók sinni sem nefnist Í hæfilegu magni. Í Bókum og stöðum förum við í Norðurfjörð og Ingólfsfjörð á Ströndum og þar verða meðal annarra á vegi okkar Þórbergur Þórðarson, Karólína Söebeck, Jón Hreggviðsson og Halldór Laxness. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Perlu eftir Jónínu Leósdóttur, Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána og Gula hundinn eftir Georges Simenon.
Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn Guðmundsson ferðast með vini sínum, Janusi Braga Jakobssyni, og eldar fyrir hann. Að þessu sinni fara þeir félagar um Austurland þar sem Kristinn þykist vera á heimavelli því faðir hans er fæddur og uppalinn á Eskifirði. Janus er aftur á móti nánast eins og algjör túristi. Þeir hitta alls kyns fólk og lenda í ýmsu skakkaföllum en alltaf lenda þeir á fótunum og fá sér í gogginn.
Kristinn og Janus leggja mikið á sig til að komast í bað upp á hálendi. Þeir villast í þokunni en finna loks rétta leið og ná markmiði sínu. Janus bjargar deginum og fær að launum gómsæta hreindýrapítsu frá Kristni.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Nóra norðurljós hrapar í loftbelginn, Loft kann ekki að taka á móti gestum og Sjón verður afbrýðisöm. Á meðan bíður Áróra eftir norðurljósunum en ekkert gerist.

Bolli og Bjalla lýsa hörkuspennandi íþróttakeppni þar sem krakkar keppast við að klára allskonar íþróttaþrautir.
Þetta er seinasti þátturinn af íþróttatíma sem haldinn er í skólanum hjá Bjarma en liðið sem sigrar í þessum þætti heldur áfram í úrslitaþáttinn, ásamt öðrum sigurvegurum.
ÍþróttaTÍMI er æsispennandi keppni á milli tveggja liða sem mætast í þrem þrautum: Svampasundi, Buxnaflækju og Kúlustigakasti.
Liðin keppast við að safna stigum og annað liðið stendur upp úr sem sigurvegari.
Í þessum þætti mætast liðin Svart og hvítt og Playstation gengið
Keppendur eru:
Indíana Mist Káradóttir
Mía Alexandra Friðriksdóttir
Eyþór Örn Gunnarsson
Aron Leví Arnþórsson
Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Krakkarnir í hljómsveitinni æfa lagið Barfly með hljómsveitinni Jeff Who? Auk þess kynnumst við nokkrum af frægustu rokkhljómsveitum tónlistarsögunnar. Hljómsveitarmeðlimir: Elísabet Hauksdóttir, Hjörleifur Daði Oddsson, Onni Máni Sigurðsson og Þorgerður K. Hermundardóttir. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson.

Rýmið til í stofunni og búið ykkur undir sveifluna. Allir geta dansað með í DaDaDans. Einfaldir dansar við skemmtilega íslenska tónlist.
Danshöfundur: Sandra Ómarsdóttir
Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Hér dansa Arnaldur og Gabríel við lag Daða Freys Hvað með það?
Getur þú dansað með?
Endilega dragðu sem flesta úr fjölskyldunni með þér á dansgólfið - það er svo gaman.
Danshöfundur:
Sandra Ómarsdóttir
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson og Una Torfadóttir yfirheyra íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Við spjöllum við tónlistarfólk sem tengist hafinu á ýmsan hátt. Elst upp við það, eða hreinlega á því. Loks taka óvæntir skipsfélagar, þeir Benni Hemm Hemm og Páll Óskar, nýtt lag saman.

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Í fjarlægð
Flytjendur: Árni Beinteinn Árnason og Birna Pétursdóttir
Höfundar: Karl O. Runólfsson og Valdimar Hólm Hallstað

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2 á sama tíma.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Rúmensk verðlaunamynd frá 2018 í leikstjórn Adinu Pintilie. Myndin er spunaverk þar sem leikstjóri og leikarar skoða nánd og ást frá ýmsum sjónarhornum. Fylgst er með tilfinningalegu ferðalagi Lauru, Tómasar og Christians í gegnum ólínulega frásögn sem er á óljósum mörkum skáldskapar og raunveruleika og veitir einstaka innsýn í líf þeirra. Aðalhlutverk: Laura Benson, Tómas Lemarquis og Christian Bayerlein. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 18 ára.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf á köldustu svæðum jarðar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar.