22:05
Snertifælni
Touch Me Not

Rúmensk verðlaunamynd frá 2018 í leikstjórn Adinu Pintilie. Myndin er spunaverk þar sem leikstjóri og leikarar skoða nánd og ást frá ýmsum sjónarhornum. Fylgst er með tilfinningalegu ferðalagi Lauru, Tómasar og Christians í gegnum ólínulega frásögn sem er á óljósum mörkum skáldskapar og raunveruleika og veitir einstaka innsýn í líf þeirra. Aðalhlutverk: Laura Benson, Tómas Lemarquis og Christian Bayerlein. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 18 ára.

Er aðgengilegt til 01. ágúst 2026.
Lengd: 2 klst. 3 mín.
18
Ekki við hæfi yngri en 18 ára.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
,