22:55
Ég hata þig
10 Things I Hate About You

Bandarísk gamanmynd frá 1999 í leikstjórn Gil Junger. Bianca er falleg og vinsæl unglingsstúlka sem má ekki fara á stefnumót fyrr en geðvonda systir hennar, Kat, gerir það líka. Samnemandi þeirra, Cameron, bregður á það ráð að borga hinum dularfulla Patrick til að heilla Kat. Myndin byggir á leikriti Shakespeare, Skassið tamið. Aðalhlutverk: Heath Ledger, Julia Stiles og Joseph Gordon-Levitt. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Aðgengilegt til: 23. nóvember 2026
Lengd: 1 klst. 33 mín.
Ekki við hæfi yngri en 12 ára
  • Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
,