21:05
Mahler 8 - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur 8. sinfóníu Mahlers. Flutningurinn markar tímamót í sögu hljómsveitarinnar þar sem þetta stórvirki tónlistarsögunnar hefur aldrei áður verið flutt hér á landi. Á sviðinu eru á fjórða hundrað flytjendur, óvenjustór hljómsveit, átta einsöngvarar, kór og barnakór. Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Er aðgengilegt til 01. júlí 2026.
Lengd: 1 klst. 26 mín.
,