
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1997. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Verzlunarskóla Íslands í undanúrslitum. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Inga Þóra Ingvarsdóttir, Björn Grétar Stefánsson og Oddur Þórir Þórarainsson. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Óli Njáll Ingólfsson, Björgvin Ingi Ólafsson og Sigurður Guðmundsson.
- Endursýnt
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og laðar fram í þeim ljúfa tóna fyrir áhorfendur. Í þessum þætti er Ólafur Haukur Símonarson gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttaröð þar sem draugatrú Íslendinga tekin til skoðunar ásamt annarri þjóðtrú, á borð við hjátrú og trú á álfa. Rætt er við ýmsa sérfræðinga og þá sem hafa haft persónuleg kynni af afturgöngum, álfum eða framliðnum. Rýnt er í hvernig draugatrú endurspeglar samfélagið, menninguna og síðast en ekki síst, sálarlíf og samvisku mannsins. Umsjón: Bryndís Björgvinsdóttir. Dagskrárgerð: Rakel Garðarsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Önnur þáttaröð þar sem hin sænska Gina Dirawi ferðast um heiminn og heimsækir fólk sem hún heillast af. Stutt er á milli hláturs og gráts þegar viðmælendur segja frá lífshlaupi sínu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Sænskir matreiðsluþættir með vinkonunum Karoline og Elenore þar sem þær elda spennandi og gómsæta grænkerarétti úti í guðsgrænni náttúrunni.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt


Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Dönsk þáttaröð um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Íslensk heimildarmynd frá 2026 um Þór Jakobsson veðurfræðing. Rætt er við Þór um feril hans sem vísindamaður og rannsóknir hans á hafís í kringum Ísland og Grænlandsstrendur. Einnig er fjallað um hann sem sjónvarpsveðurfréttamann og fræðsluefnið sem hann tók þátt í að gera fyrir Stundina okkar. Þá segir samferðafólk Þórs frá kynnum sínum af honum. Þulur: Markús Þ. Þórhallsson. Leikstjóri: Eggert Gunnarsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Leikin þáttaröð frá 2025 byggð á sannsögulegum atburðum. Eftir að hersveitir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í NATO yfirgefa Afganistan í ágúst 2021 líður ekki að löngu þar til Talibanar hefja að taka yfir hverja borgina á fætur annarri þvert á gefin loforð. Almennir borgarar, diplómatar og hermenn keppast við að komast í öruggt skjól áður en Kabúl fellur. Aðalhlutverk: Jonathan Zaccaï, Vassilis Koukalani og Darina Al Joundi. Handritshöfundar: Olivier Demangel og Thomas Finkielkraut. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Heimildarmynd um atburðina sem liggja að baki þáttaröðinni Bates gegn póstþjónustunni. Þar er fjallað um eitt stærsta réttarfarshneyksli í sögu Bretlands þegar hundruð útibússtjóra hjá breska póstinum voru ranglega ákærð og dæmd fyrir fjársvik sem rekja mátti til galla í hugbúnaðarkerfi póstsins. Í myndinni er meðal annars rætt við einstaklinga sem áttu hlut að máli, sýnd brot úr þáttaröðinni og myndefni frá atburðunum sjálfum. Leikstjóri: Clare Richards.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Hákon Pálsson, Helgi Seljan, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Rúmur þriðjungur íbúa íslenskra hjúkrunarheimila fékk sterk geðlyf í fyrra, í mörgum tilvikum án greiningar á geðsjúkdómi. Aðstandendur lýsa ástvinum sem urðu svo sljóvgaðir að þeir héldu að um alvarleg veikindi væri að ræða.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.