
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Þegar litlir stubbar fá hiksta hringir lítil bjalla í húsi Hikstaskrímslisins. Þá stekkur hann af stað, fer í freyðibað og lagar þannig hikstann. Eins gott að hann festist ekki í of þröngri peysu og komist þar af leiðandi ekki í bað!
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Fílinn er stórskemmtilegt dýr og hreyfir sig svo mikið, við lærum að elska fílinn af því að hann kennir okkur svolítið mikilvægt
Íslensk þáttaröð fyrir alla fjölskylduna. Hanna og Baldur eru ósköp venjulegir krakkar í Reykjavík. Lífið tekur stakkaskiptum þegar foreldrar þeirra ákveða að skilja. Leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson.Leikarar: Andrea Birna Guðmundsdóttir, Lúkas Emil Johansen, Svandís Dóra Einarsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Framleiðsla: Hreyfimyndasmiðjan.
Mamma og pabbi átta sig á að hlúa þarf betur að Hönnu og Baldri og að öll fjölskyldan þarf að sætta sig við að sumu verður ekki breytt.

Leikir í Meistarakeppni kvenna í fótbolta.
Leikur Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna í fótbolta.
Þáttur um Vigdísi Finnbogadóttur þar sem rætt er við samstarfsfólk, vini og kunningja Vigdísar um forsetatíð hennar og þrautagönguna að embættinu. Hvað einkenndi íslensku konuna sem braut blað í heimssögunni og hvaða áskoranir fylgdu því að vera fyrsta konan? Hvaða pólitísku mál reyndust henni erfiðust og að hvaða leyti hafði Vigdís áhrif á sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar? Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.
Kvikmyndasafn Íslands geymir fjársjóð af kvikmyndum sem sýna íslenskan veruleika snemma á síðustu öld. Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson rýna efni og sýna efni sem jafnvel enginn hefur séð. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson skoða myndefni sem tengist börnum. Við sjáum börn í skólum, sumarfríi, í sveit og við leik og íþróttaiðkun. Sumt efnið er svarthvítt og annað í lit og margar myndirnar hafa frumkvöðlar í íslenskri kvikmyndagerð tekið. Hlutverk Kvikmyndasafns Íslands er líka skoðað.
Heimildarmynd um sögu tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður sem haldin er á Ísafirði hverja páska og fagnaði 20 ára afmæli á árinu 2024. Í myndinni skyggnumst við á bak við tjöldin og kynnumst fólkinu sem stendur að hátíðinni og hefur gert hana að þeim einstaka menningarviðburði sem hún er. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon og Matthías Már Magnússon.


Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill lærum við líka svolítið táknmál.
Höfundur:
Laila Margrét Arnþórsdóttir
Leikur:
Tinna: Kolbrún Völkudóttir
Kata kónguló: Jan Fiurasek
Talsetning:
Tinna: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Kata kónguló: Erla Ruth Harðardóttir
Teddi tannálfur: Björgvin Franz Gíslason og Friðrik Friðriksson
Búningar: Helga Rún Pálsdóttir
Tinna Táknmálsálfur er svo spenntu fyrir vorverkunum og sumrinu að hún ætlar að byrja strax á vorverkunum. En frostið í jörðin er merki um það að hún kannski aðeins og snemma á ferðinni.
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Við förum í fjallgöngu og saman komumst við upp á topp, af því við erum sterk og hugrökk eins og fjallið.

Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir. Að þessu sinni fræðumst við um mannslíkamann.

Allir krakkar ættu að vera snillingar í því að fara eftir umferðarreglunum. Erlen er úti í umferðinni og kannar hvaða reglur krakkar, og reyndar fullorðnir líka, þurfa að kunna til að vera örugg í umferðinni.
Umferðarsnillingurinn Erlen minnir krakka á hvað er mikilvægast að gera þegar farið er yfir götu, eins og að líta til beggja hliða og hlusta. Hún heilsar líka upp á græna og rauða karlinn.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Í dag er skírdagur og í þættinum fræðumst við um páskana, dymbilvikuna og hefðir tengdar páskunum með hjálp Pollý páskaunga.
Ástin er mikil ráðgáta og í þessum dönsku þáttum er gerð tilraun til að finna lykilinn að henni. Getur verið að hann sé að finna í magni persónulegra gagna? Til að sannreyna vísindin á bak við Big Data eru átta einhleypir einstaklingar paraðir saman út frá persónuupplýsingum. Mun ástin kvikna þegar fólkið fer að búa saman og kynnast nánar?

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Menntaskólinn á Egilsstöðum mætir Verzlunarskóla Íslands. Keppendur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum: Steinar Aðalsteinsson, Sólgerður Vala Kristófersdóttir og Auðun Lárusson Snædal. Keppendur frá Verzlunarskóla Íslands: Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann

Ný heimildarmynd í leikstjórn Þórs Freyssonar. Hljómsveitin Nýdönsk undirbýr útgáfutónleika plötunnar Í raunheimum, í æfingabúðum í Borgarfirði. Myndin veitir einstaka innsýn í æfingar og upptökur og samstarf ólíkra manna sem enn er farsælt eftir áratugi. Framleiðsla: Trabant.

Upptaka frá útgáfutónleikum Nýdanskra í Norðurljósasal Hörpu 31. janúar 2025 þar sem hljómsveitin flutti plötuna Í raunheimum í heild sinni. Stjórn upptöku: Þór Freysson. Framleiðsla: Trabant.

Sannsöguleg Óskarsverðlaunamynd frá 2019 í leikstjórn James Mangold. Kappakstursmaðurinn Ken Miles og bílahönnuðurinn Caroll Shelpy ætla sér að hanna og smíða nýjan Ford sem getur unnið Ferrari í Le Mans kappakstrinum árið 1966. Vandinn er sá að þeir hafa aðeins 90 daga til að ljúka verkinu. Aðalhlutverk: Matt Damon, Christian Bale og Jon Bernthal. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.