Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1989. Spyrill: Vernharður Linnet. Stjórn útsendingar: Sigurður Jónasson.
Úrslitaþáttur. Menntaskólinn í Kópavogi mætir Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti skipa Guðmundur Mar Magnússon, Hermann Hermannsson og Ármann Þorvaldsson. Lið Menntaskólans í Kópavogi skipa Ólafur Ólafsson, Flosi Eiríksson og Gunnar Freysteinsson.
Heimildarþáttaröð um sögu norrænnar hönnunar á síðustu hundrað árum. Í þáttunum er meðal annars rætt við hönnuði og safnara sem veita innsýn í sögurnar á bak við heimsþekkta hönnunarmuni. Í hverjum þætti er fjallað um ákveðið tímabil á árunum 1925 til 2025. Þulur: Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Leikmenn, þjálfarar, sérfræðingar og sófasérfræðingar hita upp fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar með laufléttri en háalvarlegri spurningakeppni. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Þjálfarar: Hermann Hreiðarsson, Arnar Gunnlaugsson og Ólafur Helgi Kristjánsson.
Dr. Football: Gunnar Birgisson, Hjörvar Hafliðason og Eiður Smári Guðjohnsen.
Sænskir heimildarþættir frá 2021. Stór hluti daglegs lífs okkar er stafrænn - en hversu örugg er staða okkar í stafrænum heimi? Í þáttunum taka þrautreyndir tölvuhakkarar sig til og brjótast inn í tölvur hjá einstaklingum og fyrirtækjum, bara til að sýna okkur hinum hversu sáraeinfalt það er að komast yfir gögn - og líf - fólks með því að hakka tilveru þeirra.

Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið og kynnast matarmenningu þjóðarinnar. Í þriðju þáttaröð Veislunnar leiða þeir félagar áhorfendur í ævintýraferðir um hinar ýmsu eyjar.
Sverrir Þór og Gunnar Karl halda veislu í hinni rómuðu Flatey á Breiðafirði með dyggri aðstoð heimamanna og annarra sem þar dvelja. Hljómsveitin GÓSS er þar á meðal og aldrei að vita nema hún taki lagið í kvöldsólinni.
Bresk dramaþáttaröð frá 2026 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Barböru Taylor Bradford. Emma Hart starfar sem húshjálp í Yorkshire í byrjun 20. aldar. Með mikilli seiglu vinnur hún sig upp úr fátækt og byggir upp alþjóðlegt viðskiptastórveldi. Aðalhlutverk: Jessica Reynolds, Emmett J. Scanlan og Lydia Leonard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir um örvæntingafulla móður sem lifir áhættusömu lífi sem skartgripaþjófur á sama tíma og hún reynir að ná dóttur sinni aftur frá félagsþjónustunni og byggja örugga framtíð fyrir þær báðar. Aðalhlutverk: Sophie Turner, Frank Dillane og Mia Millichamp-Long. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Finnsk leikin þáttaröð um fasteignasalann Lindu. Eiginmaðurinn fer frá henni og skilur hana eftir í skuldasúpu. Til þess að viðhalda lífsstíl sínum neyðist Linda til að gerast drottning undirheimanna. Aðahlutverk: Laura Malmivaara, Katja Küttner og Minna Haapkylä. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.