Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Í Kastljósi í kvöld fjölluðum við um hið svokallaða Cornell mál í Bandaríkjunum sem hefur skekið heimsbyggðina og vakið upp kröftuga umræðu um kynferðisbrotamál. Við ræddum við talskonu Stígamóta og við tvo menntskælinga sem gengu út úr tíma í dag til að mótmæla aðgerðarleysi í kynferðisbrotamálum.
Í kvöld var einnig rætt við Erik Brynjolfsson hagfræðing við Stanford háskóla um áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn og þær gríðarlegu breytingar sem framundan eru þar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1997. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans í Reykjavík í úrslitum. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Inga Þóra Ingvarsdóttir, Björn Grétar Stefánsson og Oddur Þórir Þórarinsson. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Viðar Pálsson, Arnór Hauksson og Sverrir Guðmundsson.
- Endursýnt

Nokkrar hugrakkar manneskjur lesa upp úr dagbókum sínum frá unglingsárunum og deila með okkur dýpstu leyndarmálum ungdómsins, þegar allt er upp á líf og dauða og bóla á enninu er alvarlegri en efnahagshrun.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þættir sem fjalla um hringrásarhagkerfið, þar sem hlutir og hráefni fara í hring og eins manns rusl verður annars fjársjóður. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Framleiðsla: Republik.
Er hægt að lifa plastlausu lífi? Þarf að breyta kerfunum sem við búum við til að auðvelda okkur að vera umhverfisvæn?
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þættir frá 2011 um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla: Eiríkur I. Böðvarsson.
Ragnhildur Steinunn skyggnist inn í líf listamannsins Munda vonda (Guðmundar Hallgrímssonar) sem hefur á undanförnum árum getið sér gott orð fyrir fatahönnun sína. Þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára hefur honum heldur betur tekist að koma hönnun sinni á framfæri og er fatalína hans nú er seld víðsvegar um heiminn.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Sextánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í þessum þætti skoðum við Flugsafnið á Akureyri, lyftum lóðum með Elínu okkar sem við kynntumst áður í golfinu og kíkjum í klefann til Arnars Gunnlaugssonar landsliðsþjálfara. Svo eru það atvinnumál fatlaðs fólks, sem eru svo mikilvæg. Við heimsækjum Listvinnsluna og förum í síðasta smakkið með sjálfu kokkalandsliði Íslands.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Sannsögulegir breskir spennuþættir frá 2022. Þættirnir segja sögu Nicholas Elliot og Kim Philby, njósnara í bresku leyniþjónustunni og vina til margra ára. Veröld Nicholas umturnast þegar upp kemst að Kim stundaði gagnnjósnir fyrir Sovétríkin. Aðalhlutverk: Guy Pearce, Damian Lewis og Anna Maxwell Martin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Heimildarmynd frá 2023 um níundu sinfóníu Beethovens, sem er eitt af þekktustu klassísku verkum sögunnar. Í myndinni fylgjum við meðal annars úkraínskum tónlistarmönnum, heyrnarlausu tónskáldi, pólski rokkstjörnu og metsölurithöfundi, skoðum áhrif tónlistar og innblásturinn sem hún getur veitt á erfiðum tímum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.