
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Þegar litlir stubbar fá hiksta hringir lítil bjalla í húsi Hikstaskrímslisins. Þá stekkur hann af stað, fer í freyðibað og lagar þannig hikstann. Eins gott að hann festist ekki í of þröngri peysu og komist þar af leiðandi ekki í bað!
- Endursýnt
Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.
Loft snýr endurnært heim frá Satúrnusi, Tenerife veðurguðanna, en afslöppunin endist ekki lengi. Áróra vill vita allt um leikhús og fær að skyggnast á bak við tjöldin. Á meðan kveðja krakkarnir í sumarbúðunum Mána og taka á móti nýjum félögum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Reykjavík austur mætir Vesturbyggð. Keppendur frá Reykjavík austur eru Birgir Ólafsson, Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Guðmundur R. Einarsson. Keppendur frá Vesturbyggð eru Bergdís Þrastardóttir, Bjarni Snæbjörnsson og Gísli Ægir Ágústsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt
Íslensk heimildarþáttaröð í sex hlutum þar sem skyggnst er inn í heim tvíbura og sagðar persónulegar sögur. Í þáttunum er fylgst með því líffræðilega undri sem á sér stað þegar tvíburar verða til og þeim sterku tengslum sem virðast fylgja flestum tvíburum út lífið. Hvaða helstu áskoranir bíða tvíbura, búa þeir yfir meiri samkennd en aðrir, hversu samtaka í lífinu eru þeir og hugsa þeir jafnvel eins? Umsjón og framleiðsla: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarðsson.
Hrefna Erna og Eyjólfur Aðalsteinn deila átakanlegri sögu. Þau misstu annan tvíburadrenginn sinn á meðgöngu. Hrefnu fannst erfitt að halda meðgöngunni áfram eftir áfallið og enn erfiðara að fæða eitt lifandi barn og annað andvana. Einnig er skyggnst inn í líf hjóna sem ræða opinskátt um álagið sem fylgir því að eignast tvö börn í einu. Andvökunætur, veikindi, stöðugt áreiti og þörf fyrir umönnun getur tekið sinn toll og sumir foreldrar örmagnast.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sextánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í þessum þætti skoðum við Flugsafnið á Akureyri, lyftum lóðum með Elínu okkar sem við kynntumst áður í golfinu og kíkjum í klefann til Arnars Gunnlaugssonar landsliðsþjálfara. Svo eru það atvinnumál fatlaðs fólks, sem eru svo mikilvæg. Við heimsækjum Listvinnsluna og förum í síðasta smakkið með sjálfu kokkalandsliði Íslands.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttur frá 1999 um Margréti Indriðadóttur sem gegndi fyrst kvenna hlutverki fréttastjóra á Norðurlöndum en Margrét starfaði hjá Ríkisútvarpinu í 36 ár. Eva María Jónsdóttir ræðir við Margréti um æskuna, upprunann, jafnréttismál og framtíðarhorfur Ríkisútvarpsins. Dagskrárgerð: Haukur Hauksson.
- Endursýnt
Íslensk heimildarmynd frá 2026 um Þór Jakobsson veðurfræðing. Rætt er við Þór um feril hans sem vísindamaður og rannsóknir hans á hafís í kringum Ísland og Grænlandsstrendur. Einnig er fjallað um hann sem sjónvarpsveðurfréttamann og fræðsluefnið sem hann tók þátt í að gera fyrir Stundina okkar. Þá segir samferðafólk Þórs frá kynnum sínum af honum. Þulur: Markús Þ. Þórhallsson. Leikstjóri: Eggert Gunnarsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar fjöllum við um glæsilega bók sem segir frá ævi og störfum Sigvalda Thordarsonar arkitekts. Óhætt er að segja að Sigvaldi sé einn vinsælasti arkitektinn í sögu íslenskar byggingalistar og njóta verk hans mikillar aðdáunar. Bókin er rituð af Albínu Thordarson, sem er dóttir Sigvalda, og Pétri H. Ármannssyni. Við tölum við þau bæði í þættinum. Gerður Kristný segir frá nýrri skáldsögu sinni sem nefnist Mikado. Magrét Bjarnadóttir ræðir við okkur um bók sína Varkár sem hefur vakið mikla athygli. Og svo er það ungur höfundur sem heitir Vilhjálmur Pétursson en hann bar sigurorð úr samkeppninni Nýjar raddir fyrir sögu sem nefnist Harðindi og fjallar um Ísland á tíma eftir hamfarir. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Húsið - Hlýskeið eftir Hjálmar Sveinsson, Þurfamenn frá mannréttindi eftir Ragnheiði Kristjánsdóttur og spennusöguna Dauðann og eyjuna eftir Guillaume Musso.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþættir um lið ÍA sem vann einstakt afrek í íslenskri knattspyrnusögu þegar það varð Íslandsmeistari karla fimm ár í röð á árunum 1992-1996. Í þáttunum fara þjálfarar, leikmenn, andstæðingar, stjórnarmenn, stuðningsfólk og fjölmiðlafólk yfir þetta tímabil.
Árið 1994 var Guðjón Þórðarson ráðinn til KR við lítinn fögnuð Skagamanna. Kröfur til ÍA voru orðnar miklar og Gunnar Sigurðsson formaður hafði í nógu að snúast í þjálfaramálum. Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir snéru aftur til ÍA á miðju sumri 1995.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Íslensk heimildarmynd í tveimur hlutum um lífshlaup Marteins Lúthers og helstu hugmyndir siðbótarinnar. Þann 31. október 2017 voru 500 ár frá upphafi siðbótarinnar sem hafði afgerandi áhrif á þróun kristninnar. Í þáttunum ferðast Ævar Kjartansson um slóðir Lúthers í Þýskalandi og bregður upp svipmyndum af ævi hans. Rætt verður við nokkra fræðimenn um hugmyndir Lúthers og afstöðu hans til ýmissa mála. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttaröð um nýsköpun, skapandi hugsun og iðngreinar. Í þáttunum fylgjumst við með nýsköpunarkeppni ungs fólks í áttunda til tíunda bekk þar sem þátttakendur fá að þróa hugmyndir sínar í flottar frumgerðir. Einnig sjáum við hvernig raftónlistarmaðurinn Daði Freyr býr til nýtt hljóðfæri með aðstoð Fab Lab á Íslandi og skoðum hvernig iðngreinar hafa áhrif á nýsköpun. Þættirnir eru í umsjón Daða Freyr Péturssonar og Berglindar Öldu Ástþórsdóttur. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.
Loft snýr endurnært heim frá Satúrnusi, Tenerife veðurguðanna, en afslöppunin endist ekki lengi. Áróra vill vita allt um leikhús og fær að skyggnast á bak við tjöldin. Á meðan kveðja krakkarnir í sumarbúðunum Mána og taka á móti nýjum félögum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sigyn Blöndal fær fluggáfaða krakka til að hjálpa sér að leysa ráðgátur um land allt.
Við erum stödd á Hólmavík. Sagan segir að hér hafi horfið strákur fyrir nokkrum árum síðan. En hann hvarf ekki alveg, hann varð bara ósýnilegur og notfærir sér það til að stríða fólki og jafnvel stela frá því. Þær Emilía og Guðný reyna að finna ósýnilega prakkarann og fá hann til að hætta að stela. En fyrst þurfa þær að komast að því hvað það var sem gerði hann ósýnilegan.
Þátttakendur:
Emilía Rut Ómarsdóttir Guðný Sverrisdóttir
- Endursýnt
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Friðrik Ómar og Elísabet Ormslev ræða menningarfyrirbærið Celine Dion í þættinum. Við spyrjum okkur einnig hvort rokkið sé dautt. Hljómsveitin Hasar kveður allar kenningar um slíkt í kútinn. Svo eru það leikaravinirnir Kjartan Darri og Oddur Júlíusson sem koma í „Risastóru dægurmenningarspurningarkeppnina“ undir lok þáttar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Guðrún Fjeldsted hefur keppt í hestaíþróttum í yfir 60 ár. Hún er frumkvöðull í reiðþjálfun fatlaðra hér á landi og rekur reiðskóla á Ölvaldsstöðum í Borgarfirði. Þess á milli smalar hún sauðfé og veiðir á flugu enda ættuð frá bænum Ferjukoti við Hvítá sem hefur sögulegt gildi í íslenskri laxveiðisögu. Líf Guðrúnar hefur alla tíð verið samofið íslenskri náttúru en hún unir sér best í sveitinni innan um íslenska hestinn á sögusviði Íslendingasagnanna.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íslenskir heimildaþættir frá 2026. Í október 1986 ákváðu Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna að funda í Reykjavík, öllum að óvörum. Í þáttunum er fjallað um hvernig Íslendingar lögðu allt undir við að halda leiðtogafund risaveldanna með aðeins tólf daga fyrirvara. Hvaða áhrif hafði fundurinn á sálarlíf og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og hverjar voru afleiðingar hans? Leikstjóri: Árni Þór Jónsson. Framleiðsla: Republik.
Þúsundir Reykvíkinga vinna baki brotnu allan sólarhringinn við að undirbúa leiðtogafundinn en fulltrúar risaveldanna hafa ekki enn náð niðurstöðu um fundarstað. Fréttamenn ónáða tvífara Reagan í Fossvoginum, íslensk stjórnvöld eru sökuð um gyðingahatur og Hófí heillar heimspressuna. Allt er á suðupunkti.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Frönsk Óskarsverðlaunamynd frá 2023 í leikstjórn Justine Triet. Þýskur rithöfundur er ákærður fyrir morð á eiginmanni sínum, en ekki er allt sem sýnist. Aðalhlutverk: Sandra Hüller, Swann Arlaud og Milo Machado-Graner. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi