
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Hópur Íslendinga heldur í létta hlaupa- og gönguferð um stórbrotið fjalllendi Sviss. Farið er með lítinn farangur milli fjallaskála og leiðin liggur meðal annars undir hinum sögufræga Eigervegg, sem lengi hefur skipað sérstakan sess í sögu fjallamennsku.
Heimildarþáttaröð um íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, upphafsár þess og sögu, sigra og ósigra. Liðið er eitt þeirra fremstu í heiminum og stjörnur þess með þekktustu íþróttamönnum þjóðarinnar. En leið kvennalandsliðsins á þann stað sem það er á í dag var allt annað en greið.
Þegar UEFA fjölgar liðum á EM grípa Íslendingar tækifærið og tryggja sér sæti í fyrsta sinn þegar þær skauta fram hjá Írum. Þær snúa aftur fjórum árum síðar – sterkari og með skýr markmið, þótt undir niðri kraumi spenna innan hópsins.
Þættir frá 2011 þar sem fjallað er um klassíska- og samtímatónlist í víðum skilningi og leitast við að kynna hana á skemmtilegan, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt. Tónlistarfólk kemur saman í stúdíói, spjallar um tónverk og leikur þau líka. Þá er rætt við sérfræðinga og áhugamenn úr ýmsum áttum. Umsjónarmenn eru Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Viðar Víkingsson.
Í þessum þætti höldum við okkur á flekamótum listgreinanna og tölum við þá sem reyna að sameina þær.
Tólfta þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2022 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir.

Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Viðskiptastríð USA og Kanada

Íþróttafréttir.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Bein útsending frá Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli á Menningarnótt. Fram koma: JóiPé og Króli, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr, Páll Óskar og Benni Hemm Hemm. Umsjón: Atli Fannar Bjarkason, Guðrún Dís Emilsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn útsendingar: Salóme Þorkelsdóttir.

Sannsöguleg bandarísk kvikmynd frá 2016 um stærðfræðingana Katherine Johnson, Dorothy Vaughan og May Jackson sem störfuðu hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA. Þær voru konurnar á bak við tímamótageimferð Johns Glenn árið 1962, þegar hann varð fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem fór á braut um Jörðu. Á sama tíma þurftu þær að kljást við fordóma og mótbyr vegna kyns og húðlitar. Myndin var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna, meðal annars sem besta myndin. Leikstjóri: Theodore Melfi. Aðalhlutverk: Taraji P. Henson, Octavia Spencer og Janelle Monáe. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Hrollvekjandi þættir byggðir á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur. Óhugnanlegir atburðir skekja tilveru Óðins og dóttur hans eftir að Óðinn byrjar að rannsaka áratugagömul dauðsföll á upptökuheimili fyrir unglinga. Aðalhlutverk: Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólöf Halla Jóhannesdóttir og Elín Hall. Leikstjóri: Erlingur Thoroddsen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Óðinn kemst að óhugnanlegri tengingu atburðanna á Króki við hans eigið líf. Þegar Aldís reynir að flýja heimilið setur hún óvart af stað afdrifaríka atburðarás.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Viðskiptastríð USA og Kanada