

Þriðja þáttaröðin um vinalega hundinn Sám og krílin sem vinna sér inn merki á leikskólanum hans.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.

Leikföngin í Háaloftsbæ lifna við og breyta hversdagslegum hlutum í stórskemmtilegar uppfinningar. Krílin eru nefnilega snillingar í að nota ímyndunaraflið og um leið hvetja börn til þess að skapa og prófa sig áfram.
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.

Ástsælu Múmínálfar Tove Jansson snúa aftur og lenda í alls kyns skemmtilegum ævintýrum.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hallgrímur lærir að nota verndargrip Alberts. Brynhildur gerir við gamlan jeppa í verksmiðjunni. Kisi nær dularfullri flautu af ærslafullum púka. Ormhildur yfirbugar púkann og notar flautuna til að óska sér og hópnum í galdrahellinn. Smávegis mismæli senda þau í rangan helli. Álfur og önnur handbendi Hallgríms kljást við skeldýrin.

Stutt innslög frá þeim Jasmín og Jómba þar sem þau tala um tónlist og tónfræði.

Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Við förum á Dýraspítalann í Garðabæ, hittum kettina í Kattholti og tökum þátt í vinnumorgni í Húsdýragarðinum. Við fáum einnig að kynnast lemúrnum sem Vera Illugadóttir ættleiddi fyrir nokkru í Norður-Karólínu.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Sigurður Valgeirsson, Ragna Sara Jónsdóttir, Guðmundur Einar Sigurðsson Lárusson og Adolf Smári Unnarsson.

30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.

Heimildarþættir um unglingamenningu á Íslandi í gegnum tíðina. Hver þáttur spannar einn áratug og eru unglingsárin krufin í gegnum viðtöl við þjóðþekkta Íslendinga. Leikstjórn: Björn B. Björnsson. Framleiðsla: Reykjavík Films.
Fjórði þáttur leggur áherslu á áratuginn 1960-1970 og eru viðmælendur þáttarins Auður Haralds, Birna Þórðardóttir, Pétur Gunnarsson og Þráinn Bertelsson.

Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Katrín og Unnsteinn halda áfram að kryfja ýmis óvenjuleg en aðkallandi málefni út frá skemmtilegu sjónarhorni og leita svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Framleiðandi: Sævar Guðmundsson.

Danskir heimildarþættir um arkitektúr og innréttingar. Innanhúsarkitektinn og arkitektinn Frederikke Aagaard og kynnir sér sérstöðu valdra staða í hönnun og útsjónarsemi.

EM kvenna í fimleikum í Króatíu.

EM í sundi í Frakklandi.

Stuttir þættir þar sem áhorfendur fá ráð um hvernig hægt er að endurnýta gamla hluti og gæða þá nýju lífi.

Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Áróra gefur Lofti plöntu og í framhaldinu ákveður Loft að safna eins mörgum plöntum og mögulegt er. Á meðan rækta Sunna og Máni sína innri listamenn með aðstoð plantna og gróðurs sem þau finna í náttúrunni.

Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2022 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Heimildarmynd frá 2023. Megas, einn umdeildasti listamaður Íslendinga, hefur alla tíð gengið á jarðsprengjusvæði í góðri trú. Myndin fjallar um undirbúning tónleika hans í Hörpu 2019. Um tíma var tvísýnt um að hann gæti haldið tónleikana sökum heilsuleysis og því fékk hann þekktar íslenskar söngkonur til að flytja lögin. Á æfingatímabilinu var æviferill Megasar rakinn með hjálp skáldsins sjálfs og annarra sem unnu með honum á ferlinum. Framleiðandi: Jón Karl Helgason. Leikstjóri: Spessi – Sigurbjörn Hallbjörnsson.
Íslensk heimildarmynd frá 2002. Árið 2000 skráði Hrönn Sveinsdóttir sig í fegurðarsamkeppnina Ungfrú Ísland.is til að reyna að skilja hvers vegna keppt sé í fegurð. Daginn fyrir frumsýningu var lögbann sett á myndina sem hafði mikil áhrif á umræðu um tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífsins á Íslandi. Leikstjórar: Hrönn Sveinsdóttir og Árni Sveinsson.

Sannsöguleg dönsk kvikmynd frá 2023 í leikstjórn Puk Grasten. Rithöfundurinn Leonora hefur slitið öllu sambandi við foreldra sína eftir erfiða barnæsku. Þegar hún fréttir að móðir hennar sé með ólæknandi krabbamein neyðist hún til að horfast í augu við fortíðina. Myndin er byggð á metsölubók eftir Leonoru Christinu Skov. Aðalhlutverk: Frederikke Dahl Hansen, Jens Albinus og Sarah Boberg. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

EM í frjálsíþróttum á Englandi.

EM í frjálsíþróttum á Englandi.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

An Icelandic documentary from 2002. In 2000, Hrönn Sveinsdóttir, registered for an Icelandic beauty pageant to try and understand why people compete in beauty. Directors: Hrönn Sveinsdóttir and Árni Sveinsson.

EM í sundi í Frakklandi.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.