Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Halla Þórisdóttir iðnaðarráðherra vekur athygli þegar hún mætir í jarðarför bróður síns - mannsins sem reyndi að ráða hana af dögum. Víkingi bróðursyni hennar er ekki skemmt þegar hann sér að fjölmiðlar og fjandmenn föður hans virðast ætla að taka yfir athöfnina. Gömul fjölskylduleyndarmál skjóta upp kollinum.
