22:20
Vitjanir (8 af 8)
8. Mamma má ég sjá

Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.

Móðir Kristínar hefur ekki tekið lyfin sín lengi og er komin í maníu. Þegar hún lætur sig hverfa er björgunarsveitin kölluð út og Kristín og Ragnar þurfa að vinna saman í von um að finna Jóhönnu.

Er aðgengilegt til 18. september 2027.
Lengd: 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
  • Endursýnt
,