
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1990. Spyrill: Steinunn Sigurðardóttir. Dómari: Sonja B. Jónsdóttir. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir. Stjórn útsendingar: Sigurður Jónasson.
Að þessu sinni mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Menntaskólans við Sund. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Magnús Teitsson, Finnur Friðriksson og Jón Pálmi Óskarsson. Lið Menntaskólans við Sund skipa Hrafnkell Kárason, Ármann Jakobsson og Sverrir Jakobsson.

Gamanþættir frá 2009-2010 þar sem leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason bregða á leik, sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Þáttaröð sem segir frá því hvernig venjulegt fólk getur orðið svikahröppum að bráð. Hvaða eiginleika hafa svikahrappar sem gera það að verkum að gagnrýnin hugsun verður að engu og þeir ná að svindla á okkur?

Meistarakokkurinn Hrefna Sætran býður landsmönnum heim til sín á pallinn í Litla-Skerjafirði. Þar ætlar hún að grilla gómsæta rétti sem auðvelt er að útbúa. Nautakjöt, fiskur, lambakjöt, grænmeti, kjúklingur, svínakjöt og ávextir verða í aðalhlutverki í þessum sólríka og skemmtilega grillþætti.
Dagskrárgerð: Kristófer Dignus.
Framleiðandi: Stórveldið.
Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð stórmyndarinnar Englar alheimsins frá árinu 2000. Meðal þeirra sem fram koma eru Ingvar E. Sigurðsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Sigvaldi Kárason, Hilmar Örn Hilmarsson, Einar Már Guðmundsson og Friðrik Þór Friðriksson.
Íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Auður Guðbjörnsdóttir býr á bænum Búlandi sem stendur við beljandi Skaftá, efst í austanverðri Skaftártungu. Á þessum slóðum hafa stærstu náttúruhamfarir Íslandssögunnar rutt bæjum og breytt landi í árþúsundir. Auður lýsir hvernig er að búa á svo stórri og víðáttumikilli bújörð og sýnir okkur þá stórbrotnu náttúru sem landareignin hefur að geyma. Lára fer einnig með bandaríska ljósmyndarann og ævintýramanninn Chris Burkard um jörðina.
Þættir um börn og ungmenni sem eiga annað móðurmál en íslensku og hafa hlotið Íslenskuverðlaun unga fólksins. Dagskrárgerð og umsjón: Hafsteinn Vilhelmsson.
Kenzo fæddist á Ítalíu árið 2012. Þegar hann var sex ára flutti hann til Íslands og hóf skólagöngu í Melaskóla í Reykjavík. Móðurmál Kenzo er enska. Hann segist hafa lært mikið í íslensku á því að æfa fótbolta og að vinátta sé mikilvæg þegar verið er að læra nýtt tungumál.


Fjórða serían af Hönnunarstirnunum. Nico og Andrés eru mættir einu sinni enn með ný og skemmtileg verkefni og nýja keppendur.
Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Ella á besta kvöld lífs síns og verður skyndilega jafn vinsæl og Alexa. Kvöldið er ekki jafn gott hjá Olivíu. Hvernig gat Ella svikið hana svona?

Bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Louis þarf að sannfæra vini sína að fylgja sér í dularfullan leiðangur.

Sænsk þáttaröð þar sem við fylgjumst með sænskri fjölskyldu gera upp gamalt hús á Sikiley.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Danskir spennuþættir fyrir alla fjölskylduna. Romeo og Holly komast yfir tímavél sem flytur þau aftur til miðalda. Þar hitta þau unga aðalsmanninn Laurentius sem vill svo til að er forfaðir Hollyar. Saman flækjast þau í örlagaríka atburðarás sem gæti kostað þau lífið. Þættirnir eru sjálfstætt framhald jóladagatalsins Tímaflakksins. Aðalhlutverk: Julian Brix, Lærke Krabbe De Waal og Caspar Phillipson.

Sannsöguleg bresk kvikmynd frá 2020 um einstæðan föður sem greinist með krabbamein og á aðeins nokkra mánuði eftir ólifaða. Hann hefst handa við að finna góða fjölskyldu handa þriggja ára syni sínum til að tryggja honum örugga framtíð. Leikstjóri: Uberto Passolini. Aðalhlutverk: James Norton, Daniel Lamont og Eileen O‘Higgins.
Upptaka frá fimmtíu ára afmælistónleikum Páls Óskars sem haldnir voru í Háskólabíói í mars 2022. Á tónleikunum stígur Páll Óskar á svið ásamt 17 manna hljómsveit og flytur uppáhaldslög sín af löngum ferli. Hljómsveitarstjóri er Ingvar Alfreðsson sem einnig útsetur öll lögin fyrir þetta sérstaka tilefni. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Breskt drama frá 2021 um Talithu Campbell, dóttur auðugs athafnamanns, sem er handtekin, grunuð um morð á skólasystur sinni. Lögmaðurinn Cleo Roberts er ráðin til að verja Talithu á meðan lögregla og saksóknari vinna hörðum höndum að því að sanna sekt hennar. Aðalhlutverk: Celine Buckens, Tracy Ifeachor og Joseph Payne. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Beinar útsendingar frá bikarkeppni kvenna í fótbolta.
Leikur Þróttar og ÍBV í undanúrslitum Mjólkursbikar kvenna í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.