Heimildarþáttaröð í fjórum þáttum um einn ástsælasta leikara og grínara þjóðarinnar, Sigurð Sigurjónsson, sem skemmt hefur landsmönnum á skjánum, á sviði sem og á hvíta tjaldinu í meira en fjörutíu ár. Siggi og samferðafólk hans er tekið tali um leið og eftirminnilegustu hlutverkin eru rifjuð upp. Umsjón: Guðmundur Pálsson. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.
Finnsku sjónvarpskonunni Ellu Kanninen er hér fylgt eftir á ferðalagi um Suður-Ítalíu þar sem hún kynnir sér staðhætti, menningu og nýtur rómaðrar matargerðar.
Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2023 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring.
Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2.
Norskir heimildarþættir frá 2023. Fylgst er með fólki sem hefur elt drauma sína um einfaldara líf og býr nú á afskekktum stöðum fjarri ys og þys borgarlífsins.
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Samísk kona bindur vonir við að 3000 gesta brúðkaup sonar hennar lyfti henni ofar í metorðastiganum. Hún fær börnin sín til að skippuleggja stórveisluna en sá hængur er á að systkinunum kemur alls ekki vel saman. Undirbúningurinn einkennist af fjölskylduerjum og algjörri ringulreið þar sem gömul leyndarmál leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sara Margrethe Oskal, Ánte Siri og Inga Márjá Utsi. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir frá 2024. Þegar tölvuþrjótar taka yfir stjórn næturlestar frá Glasgow til London þurfa tveir ókunnugir einstaklingar – farþegi um borð og starfsmaður hjá netöryggisstofnun – að hjálpast að við að bjarga farþegum lestarinnar og afstýra stórslysi. Aðalhlutverk: Joe Cole og Alexandra Roach. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Sænskur heimildarþáttur frá 2021 um fyrirtíðaspennu. Hanna Persson þjáist af mikilli fyrirtíðaspennu og einkennin geta birst sem reiði, kvíði og jafnvel sjálfsvígshugsanir. Hún ákveður að leita sér hjálpar. Spurningin er hvort til sé einhver önnur lausn en að taka lyf.