Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra boðar fyrstu hallalausu fjárlögin síðan 2019 á næsta ári í fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Áætlunin var kynnt í dag í skugga hækkandi verðbólgu, sem mælist nú 5,4 prósent. Daði Már var gestur Kastljós þar sem hann ræddi fjármálaáætlun og baráttuna við verðbólguna.
Nokkrir nemendur við Tónhyl akademíu voru búnir að fá sig fullsadda á bíómyndum um myrkur og morð á Íslandi. Þeir ákváðu því að gera eigin bíómynd og úr varð spennumyndin Undir ísnum, sem er komin í bíó. Við hittum kvikmyndargerðarmennina.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 24 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.