Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg hafa gert samning um að byggðar verði á annað þúsund íbúðir á lóðum og í húsnæði í eigu ríkisins. Þetta er meðal aðgerða í húsnæðismálum sem kynntar voru á fundi í morgun og eru liður í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Gestur Kastljóss er Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Snædís Xyza Jónsdóttir keppti fyrst kvenna fyrir hönd Íslands í undankeppni alþjóðlegu matreiðslukeppninnar Bocuse d’Or í Frakklandi. Hún komst áfram í úrslitakeppnina sem fer fram á næsta ári og er strax farin að undirbúa sig.
Í lok þáttar kynnumst við fatahönnuðum framtíðarinnar, sem sýndu útskriftarlínur sínar úr Listaháskóla Íslands á dögunum.

Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Kristínu Ýr Gunnarsdóttir en hún eignaðist dóttur sem er með Williams heilkennið. Það tók tíma að sannfæra sérfræðinga um að eitthvað amaði að og að ekki væri um þreytu eða fæðingarþunglyndi móður að ræða. Kristín upplifði vantraust í garð heilbrigðiskerfisins og segir að það skorti mikið upp á að einingar innan þess tali saman og taki betur utan um foreldra og börn sem eru í þessum sporum.
Þáttaröð í fjórum hlutum þar sem Eva María Jónsdóttir ferðast um landið og segir sögur af fólki og atburðum úr fortíðinni. Dagskrárgerð: Björn B. Björnsson.
Að þessu sinni ferðast Eva María um Snæfellsnes og segir frá Bárðar sögu Snæfellsáss.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld hittum við konu sem greindist með krabbamein á meðgöngu, við skoðum fornar mannvistaleifar úr lofti, við hlýðum á seiðandi Gregorssöng og kíkjum á tæknidaga í Neskaupsstað.

Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson. Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.


Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð af Monsunum Kára, Villa og Hönnu sem lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Þorsteinn Flóki er ungur fréttamaður og hefur umsjón með þættinum í dag! 1. Sundteiknismiðja í Dalslaug 2. Upptakturinn í Hörpu.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson. Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Bresk leikin þáttaröð frá 2023 um kokkinn Carly og teymið hennar sem tekst á við allar þær áskoranir sem fylgja því að reka nýjan veitingastað. Aðalhlutverk: Vinette Robinson, Izuka Hoyle og Hannah Walters. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Önnur þáttaröð þessara bresku spennuþátta. Lana Washington er sprengjusérfræðingur hjá lögreglunni í Lundúnum. Hún hættir lífi sínu nánast daglega og þarf sífellt að vera viðbúin nýjum og breytilegum ógnum. Aðalhlutverk: Vicky McClure, Eric Shango og Nabil Elouahabi. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Kristján Þór Kristjánsson, Framsóknarflokki, Gylfi Ólafsson, Viðreisn, Jónas Þór Birgisson, Sjálfstæðisflokki, Sævar Óli Hjörvarsson, Miðflokki og Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Samfylkingu.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Þrír listar eru í framboði á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þór Sigurgeirsson, Sjálfstæðisflokki, Skafti Harðarson, Miðflokki og Kristinn Ólafsson, Samfylkingu.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.