Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu.

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1994. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ólafur B. Guðnason. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans að Laugarvatni og Framhaldsskólans á Laugum. Lið Menntaskólans að Laugarvatni skipa Steinar Ríkharðsson, Einar Sigmarsson og Jón Snæbjörnsson. Lið Framhaldsskólans á Laugum skipa Ragnar Bjarnason, Jón Þór Ólafsson og Rúnar Birgir Gíslason.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Tómas Rasmus greindist með krabbamein í hægri fæti og var aflimaður. Tómas er kennari með dellu fyrir skák, golfi og bridds. Hann segist vera húmoristi sem höktir um á öðrum fæti.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Í þessum þætti er Bragi Valdimar Skúlason gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.

Þáttaröð þar sem Gunnlaugur Helgason húsasmiður leiðir áhorfendur í allan sannleika um hver fyrstu skrefin eru þegar taka á húsnæði í gegn. Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík. Óþefur og ýmis konar skordýr hafa hrjáð þá sem kjallarinn hefur hýst um nokkurn tíma og greinilegt er að húsið er komið á tíma. Undir leiðsögn Gulla og fagmanna á hverju sviði vinna íbúar og eigendur húsnæðisins, ásamt vinum og ættingjum að breytingunum. Dagskrárgerð: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Krummafilms.
Hvað leynist í veggjunum? Þegar Gulli Helga og félagar byrja að rífa niður veggi og slípa gólf kemur í ljós skemmd á milli hæða. Þar hefur greinilega verið leki og nú gefur að líta morkið timbur og myglusvepp sem koma verður böndunum yfir.


Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.

Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Það er mikið um að vera í þætti dagsins💥
1. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Íslands við ESB 2. Haraldur fimmti, Noregskonungur, er látinn. Endum svo þáttinn á verðlaunaatriði Listdansskóla Hafnarfjarðar á heimsmeistaramótinu í dansi🕺

Dönsk þáttaröð um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Íslensk heimildarmynd frá 2023 í leikstjórn Arnars Þórissonar. Fylgst er með Kristni Guðnasyni fjallkóngi og gangnamönnum í leitum á Landmannaafrétti. Gefin er raunsönn mynd af leitum og samspili manna, dýra og náttúru með augum fjallkóngsins. Framleiðendur: Áslaug Pálsdóttir og Guðrún Hergils Valdimarsdóttir. Klipping: Jakob Halldórsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Hljóð og hljóðhönnun: Pétur Einarsson.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2022. Ungur námsmaður finnst myrtur í smábæ í Portúgal. Dómari í málinu stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun þegar rannsóknin tekur óvænta stefnu. Aðalhlutverk: Margarida Vila-Nova, Nuno Lopes og Ivo Canelas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Breskir heimildarþættir frá 2021. Hvað felst í að ganga með annarra manna barn? Fjallað er um flókinn veruleika staðgöngumæðra í Bretlandi út frá sjónarhorni fimm kvenna og verðandi foreldra barnanna sem þær ganga með.
Sannsöguleg leikin þáttaröð um eitt stærsta réttarfarshneyksli í sögu Bretlands. Hundruð útibússtjóra hjá breska póstinum voru ranglega ákærðir og dæmdir fyrir fjársvik sem rekja mátti til galla í hugbúnaðarkerfi póstsins. Aðalhlutverk: Toby Jones, Monica Dolan, Julie Hesmondhalgh og Will Mellor.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM karla í körfubolta.
Upphitun fyrir leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM karla í körfubolta.

Leikir í undankeppni HM karla í körfubolta.
Leikur Íslands og Tyrklands í undankeppni HM karla í körfubolta.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM karla í körfubolta.
Uppgjör á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM karla í körfubolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.