
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi verður dauðhræddur þegar eitt barna hans ákveður að gera nokkuð stórkostlegt til að skemmta fjölskyldunni, eins og að labba á loftfimleika-línu þar sem fallið getur verið ansi hátt.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn fær skjól hjá Hildi heilara. Ormhildur fer að leita jurta og lendir þá næstum í klóm Rauðs. Alberti tekst að flýja úr hafarnarhreiðrinu. Þrjár ástsjúkar skessur handsama hann, þvinga hann til að vinna og krefjast þess að hann giftist þeirri elstu. Álfur fellur í hendur Rauðs.
Loft dreymir undarlegan draum og sannfærist um að heimurinn sé að enda. Það byrjar að undirbúa sig fyrir heimsendi af fullum krafti! Á meðan heimsækir Áróra dagvistina Sunnuhlíð, kynnist frábæru fólki og syngur og spilar með nýjum vinum sínum.

Náttúrulífsþættir frá BBC um stórbrotna náttúru og dýralíf Skandinavíu.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir ákveður að flytja þvert yfir landið en getur ekki tekið kindurnar með sér. Við hittum Heiðu Guðnýju á Ljótarstöðum í Skaftártungu og svo ári síðar í Sveinungsvík rétt við Raufarhöfn. Við hittum einnig nemendur í framhaldsskólanum á Laugum sem flytja mörg hver tvisvar sinnum, landshorna á milli, áður en þau verða tvítug. Við kynnumst Lydíu Egilsdóttur og Inga Þór Þorsteinssyni sem fluttu frá Reykjavík til Hveragerðis og drógu óvænt tvær fjölskyldur með sér. Við hittum líka Gretu Lietuvninkaité og Justas Suscickis frá Litáen sem fluttu til Vestfjarða til að vera í nokkra mánuði en eru þar enn – sjö árum síðar.

Íslensk heimildarmynd þar sem reynsla þriggja kvenna af heimafæðingu er skoðuð frá sjónarhorni leikstjórans, sem reyndi sjálf að fæða heima. Hver fæðing er einstök og vekur upp nýjar spurningar, meðal annars um kvenleikann og hvar og hvernig kona upplifir sig heima. Leikstjóri: Dögg Mósesdóttir.

Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Sænskir heimildarþættir frá 2022. Eftir að Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, lést árið 2018, arfleiddi hann Norrland í Svíþjóð fúlgu fjár, en ekki Smálönd þar sem hann fæddist. Ákvörðunin vakti mikla undrun auk þess sem skiptar skoðanir voru um hvernig ætti að nota peningana.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar segjum við frá nýrri bók þar sem fjallað er um ævi, list og starf Drífu Viðar. Drífa var gríðarlega fjölhæf kona, stundaði einkum málaralist en fékkst einnig við ritstörf, listgagnrýni og fleira. Hún lést fyrir aldur fram, aðeins 51 árs árið 1971. Við ræðum við tvo ritstjóra bókarinnar, Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur og Elísabetu Gunnarsdóttur. Við Kolbrún Bergþórsdóttir og Ingibjörg Iða Auðunardóttir förum á Bókamarkaðinn og veljum bækur sem vekja áhuga okkar. Una Björk Kjerúlf fékk um daginn hin virtu bókmenntaverðlaun Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir kvæði sitt Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra hljóða - við spjöllum við hana í þættinum og hún flytur ljóðið. Í dagskrárliðnum Bókum og stöðum förum við norður í Reykjarfjörð á Ströndum en þar var forðum tíð miðstöð hvalveiða og síðar hákarlaveiða.

Heimildarmynd um textíllistakonuna Tinnu Þórudóttur Þorvaldar og leit hennar að rótum þeirra hannyrða sem við þekkjum í dag. Með aðstoð sérfræðinga uppgötvar hún að nútímalist er sköpuð með sömu tækni og aldagamlar hannyrðir og sýnir okkur þær gersemar sem við eigum í okkar sögulega handverki. Leikstjóri: Nicos Argillet.
Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð gamanmyndarinnar Íslenski draumurinn frá árinu 2000. Meðal þeirra sem fram koma eru Þórhallur Sverrisson, Hafdís Huld, Jón Gnarr, Laufey Brá Jónsdóttir, Matt Keeslar, Jón Fjörnir Thoroddsen, Júlíus Kemp og Róbert Douglas.
Þáttaröð um mat og matarmenningu Íslendinga allt frá landnámi til dagsins í dag – og jafnvel nokkur skref inn í framtíðina. Gísli og Silla fara með áhorfendur í rannsóknarleiðangur þar sem þau skoða hinar ýmsu mýtur og sturlaðar staðreyndir um mat. Matarsérfræðingar greina matarhefðir, tískur og strauma – allt frá súrmat til skordýrasnakks – og stjörnukokkar fá það verkefni að búa til gómsætar máltíðir úr vinsælu hráefni liðinna tíma. Umsjón: Gísli Einarsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir. Dagskrárgerð: Konráð Pálmason.
Skyndibitinn fór á flug upp úr 1950, þökk sé ameríska hernum, og niðursoðinn ananas varð ómissandi með nánast öllum mat. Fólk í Náttúrulækningafélaginu var það eina sem gat keypt hvítlauk og innfluningur á grænmeti og ávöxtum var alfarið háður duttlungum Grænmetisverslunar ríkisins – þar til hinar alræmdu finnsku kartöflur skóku þjóðina.

Loft dreymir undarlegan draum og sannfærist um að heimurinn sé að enda. Það byrjar að undirbúa sig fyrir heimsendi af fullum krafti! Á meðan heimsækir Áróra dagvistina Sunnuhlíð, kynnist frábæru fólki og syngur og spilar með nýjum vinum sínum.

Safn tónlistaratriða úr Stundinni okkar þar sem krakkar eru í sviðsljósinu.
Krakkakór Grafarvogskirkju syngur lagið Mín kisa dansar tangó/Kisutangó. Texti: Magnús Pétursson. Lagahöfundur ókunnur. Stjórnandi og undirleikur Gróa Hreinsdóttir
Nýir heimildarþættir um þróun íslensks táknmáls frá fyrri tíð til dagsins í dag. Skoðað er hvaða samfélagslegu, menningarlegu og málfræðilegu áhrif móta íslenskt táknmál nútímans, hvað felst í vönduðu íslensku táknmáli og hvernig málið stendur í samanburði við önnur táknmál. Hjördís Anna Haraldsdóttir ræðir við fræðimenn og sérfræðinga í íslensku táknmáli auk notenda málsins í leit að ólíkum sjónarhornum og svörum um stöðu og framtíð málsins.
Ferðast er aftur í tímann til að sjá hvernig íslenskt táknmál hefur þróast. Anna Jóna, Ingibjörg og Rúdólf rifja upp táknin eins og þau voru áður fyrr. Hjördís Anna ræðir við fræðimenn og ungt fólk um íslenskt táknmál og leit að nýjum táknum.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo kanadíska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Auður Guðbjörnsdóttir býr á bænum Búlandi sem stendur við beljandi Skaftá, efst í austanverðri Skaftártungu. Á þessum slóðum hafa stærstu náttúruhamfarir Íslandssögunnar rutt bæjum og breytt landi í árþúsundir. Auður lýsir hvernig er að búa á svo stórri og víðáttumikilli bújörð og sýnir okkur þá stórbrotnu náttúru sem landareignin hefur að geyma. Lára fer einnig með kanadíska ljósmyndarann og ævintýramanninn Chris Burkard um jörðina.
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Ljúfsár gamanmynd frá 2019 í leikstjórn Taika Waititi. Jojo er tíu ára drengur í ungliðahreyfingu Adolfs Hitlers, þar sem ungdómnum er kennt að meðhöndla vopn og að gyðingar séu rót alls ills. Þegar Jojo uppgötvar að móðir hans hefur falið gyðingastelpu heima hjá þeim neyðist hann til að endurmeta allt sem hann hefur lært um nasisma. Myndin hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta handritið árið 2020. Aðalhlutverk: Roman Griffin Davis, Thomasin McKenzie og Scarlett Johansson. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.