Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar fjöllum við um stórmerkilega rannsókn á myndskreytingum í seinni tíma handritum, frá 17. öld til upphafs 20. aldar. Þarna er þáttur í myndlistarsögu Íslands sem lítt hefur verið gaumur gefinn. Hér ræðir um bókina Skrifarar sem skreyttu handrit sín eftir sagnfræðinginn Kjartan Atla Ísleifsson. Jónína Leósdóttir segir okkur frá nýrri spennusögu sinni sem nefnist Algjör perla - sjálf segir hún að þetta sé kátínukrimmi. Við hittum blaðamanninn Sigurð Boga Sævarsson en hann hefur sent frá sér bókina Fólkið í vinnunni. Hún birtir sýnishorn af starfi Sigurðar sem ferðast vitt og breitt um landið, tekur myndir af fólki á förnum vegi og ræðir við það. Góð gamaldags blaðamennska semsé. Í Bókum og stöðum förum við í Kollafjörð á Ströndum en þar verða meðal annars á vegi okkar bóndakonan og rithöfundurinn Guðbjörg Jónsdóttir og skáldið Gerður Kristný. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Hinn æðsta leyndardóm eftir Dan Brown, Stund úlfsins eftir Jo Nesbö og hið sígilda rit Útlendinginn eftir Albert Camus.
