Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í gær um 0,25 prósentustig og eru þeir því orðnir 7,5 prósent. Verðbólga mælist 5,2 prósent, sem þýðir að forsendur kjarasamninga í haust eru í hættu. Fjármálaráðherra kallar eftir samstilltu átaki ríkis, vinnuveitenda og verkalýðshreyfingar - en varar við að þær yrðu ekki sársaukalausar. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins. eru gestir Kastljóss.
Rauði liturinn er allsráðandi á legudeildum Landspítalans - sem þýðir að þær eru yfirfullar. Hjúkrunarfræðingur segir að að eitt sinn hefði mátt líkja ástandinu við snjóhengju - en nú sé hún fallin. Við fylgjumst með starfsfólki Landspítalans reyna að finna rúm fyrir sjúklinga.
Umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB verður ekki haldið áfram á Alþingi fyrr en eftir páska. Þá kemur í ljós hvort atkvæðagreiðslan verði 29. ágúst eins og stefnt er að. Fram að því má búast við líflegum umræðum og ljóst er að almenningur hefur fjölmargar spurningar sem tengjast bæði atkvæðagreiðslunni og mögulegri aðild að ESB. Torgið næsta þriðjudag verður helgað þeim spurningum
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.