Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Kaupfíkn er kannski ekki alltaf tekin alvarlega en hún er samt sem áður raunveruleg og virðist herja á sífellt fleiri. Vandinn er oft falinn og fáir leita sér aðstoðar. Við kynnum okkur kaupfíkn í þættinum.
Flestir fara ef til vill í fyrsta sinn í leikhús á grunnskólaaldri. Því er öðruvísi farið með leiksýninguna Hreiðrið því þar eru leikhússgestirnir þriggja mánaða, og upp úr. Kastljós heimsótti Hreiðrið.

Spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Sigyn Blöndal. Dómari: Sveinn Guðmarsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Náttúrulífsmynd um stefnumótaforrit fyrir gibbonapa. Kínversk poppstjarna og vísindamaður vinna saman að þróun á kerfi sem aðstoðar sjaldgæfa tengund gibbonapa að finna maka í Gaoligong-fjöllum á landamærum Kína og Mjanmar.
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Menntaskólinn að Laugarvatni mætir Verzlunarskóla Íslands. Keppendur frá Menntaskólanum á Laugarvatni: Allan Hólm Rúnarsson, Stefán Gunngeir Stefánsson og Þórey Kristín Rúnarsdóttir. Keppendur frá Verzlunarskóla Íslands: Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann.


Finnlands-sænskir þættir þar sem krakkar segja frá áhugamálum sínum.
Fylgstu með hugrökkum krökkum breytast í smáspæjara og takast á við fjölbreytt verkefni og ráðgátur í Krimmaborg. Með hjálp frá Spæjara X og Ninjo elta þau útsmogna skúrka og læra að vinna saman á skemmtilegan og spennandi hátt. Serían er með íslenskum texta.
Sænskir þættir sem fjalla um ævintýri sem eiga sér stað í sumarbúðum í Svíþjóð. Þar eru foringjarnir ekki alveg eins og fólk er flest og forvitin börn lenda í fjörugum aðstæðum, sem innihalda meðal annars boga, brjálaða geitunga og bjarnargildrur!

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Þegar Emma kemst að því að hún er erfingi eins mesta auðkýfings í Noregi gjörbreytist líf hennar á einum degi. Með í pakkanum fylgja þó fjögur hálfsystkini sem eru ekki jafn ánægð með að faðir þeirra hafi bætt Emmu á erfðaskrána í laumi. Aðalhlutverk: Vivild Falk Berg, Henriette Steenstrup, Nicolai Cleve Broch, Helle Ryg Eia og Kristin Grue.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Þrettánda þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.

Sannsöguleg glæpamynd frá 2017 í leikstjórn Aarons Sorkin. Myndin segir frá bandarísku skíðakonunni Molly Bloom sem var eftirlýst af bandarísku alríkislögreglunni fyrir að skipuleggja og halda utan um ólögleg pókerkvöld fyrir útvalda milljónamæringa. Aðalhlutverk: Jessica Chastain, Idris Elba og Kevin Costner. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM karla í körfubolta.
Upphitun fyrir leik Íslands og Litáen í undankeppni HM karla í körfubolta.

Leikir í undankeppni HM karla í körfubolta.
Leikur Íslands og Litáen í undankeppni HM karla í körfubolta.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM karla í körfubolta.
Uppgjör á leik Íslands og Litáen í undankeppni HM karla í körfubolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.