Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Þrátt fyrir viðvarandi verðbólgu, háa stýrivexti og dýrtíð mælist neysla með mesta móti. Hefur almenningur það gott þrátt fyrir allt eða er misskipting að aukast þar sem þeir efnaminni borga brúsann? Gestur Kastljós er Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent í efnahagsfélagsfræði sem hefur rannsakað ójöfnuð.
Persónuverndarreglur í Evrópu eru strangar en samt sem áður fá notendur snjallsíma og snjallúra oft þá tilfinningu að stóri bróðir sé að fylgjast með. Við köfum ofan í gagnasöfnun í snjalltækjum í þættinum og komumst að því hvernig síminn þekkir okkur jafnvel betur en við sjálf.
Við hittum einnig tónlistarkennara Laufeyjar Línar sem vann sín önnur Grammy-verðlaun um helgina. Platan hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna.

Spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Sigyn Blöndal. Dómari: Sveinn Guðmarsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Danskir heimildarþættir þar sem sex ungmenni sem þjást af streitu taka þátt í tilraun þar sem þau slökkva á símunum sínum og flytjast út í skóg. Getur dvölin í náttúrunni dregið úr streitueinkennum á aðeins sex dögum?
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Erik Figueras Torras sem hefur búið á Íslandi í 20 ár og þekkir landið, þjóðareinkennin og íslenskuna betur en innfæddir.
Íslensk heimildarmynd um eldstöðina Kötlu, en þann 12. október 2018 voru hundrað ár frá því hún gaus síðast. Katla er hættulegasta eldfjall landsins og allt fram til dagsins í dag hafa heimamenn, almannavarnir, lögregla, björgunarsveitir og fleiri gert ráðstafanir um hvernig bregðast skuli við, gjósi Katla. Rætt er við heimamenn og viðbragðsaðila um hættur samfara Kötlugosi og talað við vísindamenn um Kötlu og Kötluvá. Dagskrárgerð: Lára Ómarsdóttir og Einar Rafnsson.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð af Monsunum Kára, Villa og Hönnu sem lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Heimildarþáttaröð um sögu norrænnar hönnunar á síðustu hundrað árum. Í þáttunum er meðal annars rætt við hönnuði og safnara sem veita innsýn í sögurnar á bak við heimsþekkta hönnunarmuni. Í hverjum þætti er fjallað um ákveðið tímabil á árunum 1925 til 2025. Þulur: Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Breskir dramaþættir frá 2023 um foreldra stúlku með sjaldgæfan vöðvarýrnunarsjúkdóm sem standa frammi fyrir átakanlegri ákvörðun þegar læknar hennar vilja hætta meðferð. Aðalhlutverk: Sharon Horgan, Michael Sheen, Niam Moriarty og Alison Oliver. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarþáttaröð frá 2023 þar sem Chuck D úr hljómsveitinni Public Enemy rekur sögu hip hop-tónlistar á síðustu 50 árum. Rætt er við fjölda tónlistarmanna og fjallað um áhrifamátt tónlistar á samfélög. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Sænskir leiknir heimildarþættir frá 2023. Farið er yfir sögu Svíþjóðar frá ísöld til dagsins í dag. Yfir 300 sérfræðingar komu að gerð þessarar tíu hluta þáttaraðar þar sem sögulegir viðburðir eru endurskapaðir. Sögumaður: Simon J. Berger. Leikstjórar: Niklas Fröberg og Niklas Vidinghoff.

Leikir í VÍS-bikarkeppni kvenna í körfubolta.
Leikur Keflavíkur og Hamars/Þórs í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta.

Leikir í VÍS-bikarkeppni kvenna í körfubolta.
Leikur Tindastóls og Grindavíkur í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.