Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Heimsendingarfyrirtækið Wolt, sem býður upp á heimsendingar á mat og ýmsum varningi, kom inn á íslenskan markað árið 2023 og nýtur mikilla vinsælda. 400 sendlar starfa í dag sem vertakar fyrir fyrirtækið hér á landi. Þrátt fyrir vinsældir þjónustunnar hjá almenningi hefur verkalýðshreyfingin víða um Evrópu háð harða baráttu við Wolt og sakað fyrirtækið um að dansa í kringum leikreglur vinnumarkaðarins. Alþýðusamband Íslands hefur gagnrýnt fyrirkomulagið frá upphafi og fulltrúar sambandsins sendu á ný frá sér grein í morgun vegna viðburðar sem Wolt stendur fyrir hér á landi á morgun undir yfirskriftinni Raunhagkerfið. Annarr höfundanna er Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir lögrfæðingur hjá ASÍ sem er gestur Kastljóss.
Sjónvarpsþættirnir Danska konan slógu í gegn í upphafi árs hér á RÚV. Kastljós ákvað í kjölfarið að kynna sér stöðu dönskukennslu hér á landi.
Söngleikurinn Dead as a dodo hlaut afbragðsviðtökur í New York undir lok síðasta árs og lagði í kjölfarið af stað í tónleikaferðalag um heiminn. Höfundur tónlistar er Íslendingurinn Þórður Gunnar Þorvaldsson, sem við ræðum við í þættinum.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.