Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Grindavíkurbær hyggur á skólahald í haust en Grindavíkurnefnd leggst gegn því. Við ræðum nýútkomna rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur og viðtökurnar sem hún hefur fengið meðal Grindvíkinga. Viðmælendur eru Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar og Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur.
Við kynnum okkur líka nýja aðferð til húsbygginga, sem nú er beitt við Sölkugötu í Mosfellsbæ. Hönnuðir aðferðarinnar binda vonir við að með henni megi byggja hús á skemmri tíma og með minni tilkostnaði.
