
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.
Fyrsti vetrardagur rennur upp en Loft og Sjón hafa engan tíma til að slaka á – fjársjóðsleitin heldur áfram! Ný og dularfull vísbending reynist þeim þó ofviða og þau leita til Áróru eftir hjálp. Í sumarbúðunum er allt annað á seyði þar sem krakkarnir keppa í kappáti og töfra svo fram dýrindis súkkulaðibúðing.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Akureyri mætir Akranesi. Keppendur frá Akureyri eru Óðinn Svan Óðinsson, Eva Björk Benediktsdóttir og Pétur Már Guðmundsson. Keppendur frá Akranesi eru Eva Laufey Kjaran, Alexander Aron Guðjónsson og Bryndís Böðvarsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Í Landanum í kvöld kynnum við okkur stöðu langveikra barna á landsbyggðinni, spjöllum við hressa djassara sem kenna músík í tónlistarskólanum á Höfn, fáum okkur kaffi með fólki býr saman, vinnur saman og er yfir sig ástfangið, og kynnum okkur frægasta kynbótagrip okkar Íslendinga, Huppu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þrettánda þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Sænskir matreiðsluþættir frá 2023. Grínistinn David Batra og fréttakonan Malin Mendel ætla að opna veitingastað á Indlandi. Þau ákveða hvað verður á matseðlinum með því að prófa sig áfram í að elda klassíska indverska rétti og gamlar fjölskylduuppskriftir.
- Endursýnt
Heimildarmynd frá 2026 um líf ungra aðstandenda krabbameinssjúklinga. Einlæg viðtöl og persónuleg frásögn varpa ljósi á hvernig veikindi foreldris geta umbreytt heimi ungs einstaklings. Leikstjórn og framleiðsla: Ísak Breki Gíslason.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.
Fyrsti vetrardagur rennur upp en Loft og Sjón hafa engan tíma til að slaka á – fjársjóðsleitin heldur áfram! Ný og dularfull vísbending reynist þeim þó ofviða og þau leita til Áróru eftir hjálp. Í sumarbúðunum er allt annað á seyði þar sem krakkarnir keppa í kappáti og töfra svo fram dýrindis súkkulaðibúðing.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sumarliði hefur tekið við heimilisfræðikennslunni og fer með nemendur sína í tímflakk, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá mismunandi tímabilum í sögunni.
Í dag búa krakkarnir til víkingabrauð og víkinga blóðbrauð! Víkingabrauð var bakað á Víkingaöld sem var frá 800-1050. Brauðið er einfalt en það var búið til úr því korni sem var til hverju sinni og vatni. Stundum var hunang sett ofan á brauðið til að bragðbæta það en öðrum stundum var dýrablóð sett í deigið til að auka næringargildið.
- Endursýnt
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Á hvað er fólk að hlusta? Tónlistargagnrýnendur Miðstöðvarinnar rýna í bestu plötur haustsins.
Hver er Unnur Borg? Hún skaust upp á stjörnuhimininn á TikTok með því að auglýsa kjóla og sendi svo frá sér lagið Barnsfaðir í sumar sem sló í gegn. Hver er þessi tvítuga athafnakona? Við höngum í Kringlunni með Unni eða UB í Miðstöðinni.
Sóli Hólm og Halldór Smárason hafa undanfarin ár sett saman sýninguna Jóla Hólm sem hefur slegið hvert aðsóknarmetið á fætur öðru í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir jólin. Vinirnir koma í spjall, spurningakeppni og meðmæli vikunnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Íslensk tónlistarmyndbönd.
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Endurskoðar breytingar á Loftbrú
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Viðtalsþáttur þar sem Viktoría Hermannsdóttir spjallar við áhugavert fólk á einlægum nótum og fær að heyra alls konar sögur. Dagskrárgerð: Fannar Scheving Edwardsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins var árið 2024 valin ein af 100 áhrifamestu konum heims af BBC og Harvard. Nýlega opnaði nýtt Kvennaathvarf sem Linda hefur ásamt starfskonum athvarfsins unnið baki brotnu við að koma á laggirnar. Linda býr yfir mikilli lífsreynslu og ræðir við Viktoríu Hermannsdóttur um föður sinn sem var myrtur, dótturina sem hún missti, afdrifarík læknamistök og það mikla og merka starf sem unnið er í Kvennaathvarfinu í þágu kvenna og barna.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Karen er boðið í spennandi óvissuferð út fyrir bæinn. Hún er óörugg yfir því hvað sé í vændum en endar á að fara alla leið í gleðskapnum og rúmlega það.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Sænsk leikin þáttaröð frá 2026 eftir Brynju Björk Garðarsdóttur. Banvænn svefnleysisfaraldur herjar á Stokkhólm og setur samfélagið á hliðina. Íbúar borgarinnar neyðast til að takast á við nýjan og ógnvænlegan veruleika. Leikstjóri: Henrik Georgsson. Aðalhlutverk: Jonas Karlsson, Aliette Opheim og Gizem Erdogan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Sannsöguleg dönsk kvikmynd frá 2023. Skólastjóri í Danmörku stendur frammi fyrir erfiðum siðferðisvanda þegar skólanum hans er breytt í flóttamannabúðir fyrir Þjóðverja undir lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Leikstjóri: Anders Walter. Aðalhlutverk: Pilou Asbæk, Lasse Peter Larsen og Katrine Greis-Rosenthal. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Endurskoðar breytingar á Loftbrú