
Litla Ló býr með Kisu, bróður sínum Húgó, foreldrum sínum - og líka álfinum Búa sem býr í holu í veggnum. Búi er algjör töframaður og á hverjum degi býður hann Litlu Ló og Kisu í nýtt ævintýri úti í náttúrunni.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Kráka sem heldur að hún sé hvolpur gerir Edda strútapabba alveg vitlausan!
Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Róið er á kajökum um norska skerjagarðinn þar sem leiðin hlykkjast milli hólma, eyja og þröngra sunda. Ferðalagið tekur mið af sjávarföllum, vindi og veðri og á hverjum degi þarf að finna nýja leið í gegnum margbrotið strandlandslag.
Bresk heimildarmynd frá 2023 um fatahönnuðinn Amy Powney, eiganda tískumerkisins Mother of Pearl. Þegar hún vinnur verðlaun sem besti ungi fatahönnuður ársins hjá tískutímaritinu Vogue notar hún verðlaunaféð í að hanna sjálfbæra fatalínu og umturna fyrirtæki sínu. Fyrr en varir fylgir nær allur tískuheimurinn á eftir. Leikstjóri: Becky Hunter.
Tólfta þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.


Skemmtiatriði og tónlistarflutningur úr skemmtiþættinum Góðir Íslendingar þar sem Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Íslensk kvikmynd frá 2010 eftir Friðrik Þór Friðriksson. Gógó greinist með alzheimer-sjúkdóminn og fjölskyldan þarf að takast á við breyttan veruleika. Á sama tíma er sonur hennar í fjárhagskröggum vegna kvikmyndaframleiðslu og baslar við að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Aðalhlutverk: Kristbjörg Kjeld, Hilmir Snær Guðnason og Gunnar Eyjólfsson.
Bandarísk kvikmynd frá 2021 í leikstjórn Chase Palmer. Ungur lögfræðingur í New York er kominn með nóg af réttarkerfinu. Hann á í hættu á að missa málflutningsleyfið og í örvæntingu sinni ákveður hann að ræna risastórri fíkniefnasendingu af skjólstæðingi sínum. Aðalhlutverk: John Boyega, Olivia Cooke og Bill Skarsgård. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.