19:45
Stjörnubíó (2 af 6)
Nýtt líf

Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð sígildu gamanmyndarinnar Nýtt líf frá 1983. Meðal þeirra sem fram koma eru Eggert Þorleifsson, Karl Ágúst Úlfsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þráinn Bertelsson, Ari Kristinsson og framleiðandinn Jón Hermannsson. Þátturinn er tileinkaður minningu Jóns.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.