Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Þrír listar eru í framboði í Vestmannaeyjum fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Eyþór Harðarson, Sjálfstæðisflokki, Arndís María Kjartansdóttir, Eyjalistanum og Jón Þór Guðjónsson, Miðflokki.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Sex listar eru í framboði í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Framsóknarflokki og félagshyggjufólks, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Ágúst Sigurður Óskarsson, M-listi samfélagsins, Ómar Gunnarsson, Óskalistanum, Kjartan Páll Þórarinsson, Samfylkingu og Aldey Unnur Traustadóttir, V-listi Velferðar.
Umræðuþáttur í beinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. Á Torginu er talað um málefnin sem rædd eru af kappi á kaffistofum landsins. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson. Stjórn útsendingar: Þór Freysson.
Íslendingar eru þyngstir Norðurlandabúa en 70% fullorðinna mælast annað hvort í yfirþyngd eða með offitu. Á sama tíma fer tilfellum átröskunarsjúkdóma fjölgandi. Á Torginu var rætt um þyngdarstjórnun, offitu og fordóma, leiðir til að takast á við vandann og orsakir.
Gestir:
Sólveig Sigurðardóttir, formaður SFO, Samtaka fólks með offitu
Tryggvi Helgason barnalæknir og sérfræðingur í offitu barna
Birna Þórisdóttir næringarfræðingur og lektor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands
Jórunn Edda Óskarsdóttir, sálfræðingur í offituteymi Reykjalundar.
Rut Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur í stjórn SFO og FFO sem er félag fagfólks um offitu
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir, yfirlæknir á Reykjalundi
Elín Vigdís Guðmundsdóttir formaður SÁTT sem eru samtök fólks með átröskun og tengdar raskanir
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld förm við í loftið með flugsystrum, við kynnum okkur sólarorku, við teljum gæsir og njótum steinlistar í Grímsnesi.

Danskir heimildarþættir um fjölskyldu sem ákveður að einfalda líf sitt - kveðja hina erilsömu Kaupmannahöfn og flytja búferlum í sveitasæluna á Fjóni. Fjölskyldan stundar þar sjálfsþurftarbúskap, gengur um berfætt, horfir ekki á sjónvarp né hlustar á útvarpið og börnin hafa aldrei smakkað hvítan sykur.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar ræðum við um bókina Mamma og ég við höfund hennar, Kolbein Þorsteinsson. Kolbeinn er sonur rithöfundarins Ástu Sigurðardóttur og í bókinni lýsir hann sviptingasamri æsku þar sem hann og systkini hans hröktust milli heimila og voru loks tekin af móðurinni. Ásta lést vegna áfengisfíknar sinnar 1971. Lóa Hjálmtýsdóttir talar um nýja bók sína sem nefnist Fnæs. Þetta er mikill prentgripur og inniheldur bráðfyndnar skopteikningar sem hún hefur gert síðustu fimm árin. Skáldið Valdimar Tómasson segir ögn frá nýrri ljóðabók sinni sem kallast Svanvængjuð þrá og fer með kvæði úr henni. Í Bókum og stöðum förum við á Drangsnes og í Bjarnarfjörð þar sem verða meðal annarra á vegi okkar höfundarnir Bergsveinn Birgisson og Jón Kalman Stefánsson. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson, nýtt úrval smásagna eftir Þórarin Eldjárn og Framtíðin á ferðinni eftir Þórhildi Ólafsdóttur.

Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson. Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.

Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.


Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir. Að þessu sinni fræðumst við um mannslíkamann.
Birta og Jean segja frá því hvernig þú getur orðið hugmyndasmiður. Hugmyndasmiður er sá sem fær hugmynd og hefur hugrekki og kraft til að láta hana verða að veruleika. Þau spjalla við íslenska hugmyndasmiði um uppfinningarnar þeirra og ræða hvers vegna hugmyndasmiðir eru mikilvægir fyrir bæði nútíð og framtíð. Umsjón: Birta Steinunn Sunnu Ægisdóttir og Jean Daníel Seyo Sonde. Þættirnir eru framleiddir af KrakkaRÚV í samstarfi við verkefnið Hugmyndasmiðir, sem fræðir krakka um nýsköpun. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðunni hugmyndasmidir.is
Á Íslandi eru margir klárir hugmyndasmiðir. Birta og Jean spjalla við Guðmund, Rakel og Árna sem öll eru hugmyndasmiðir sem búa til vörur úr náttúrulegu efni.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson. Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Þjóðin elskar grín og sérstaklega það sem kallað er sketsar. Upprennandi grínistinn Unnar Steinn ætlar að segja okkur frá Sketsagerðinni sem hann heldur úti á samfélagsmiðlum. Ef það er ekki nóg þá ætla sérfræðingarnir Birna Rún og Pálmi Freyr að kryfja með sketsaformið sem sérfræðingar vikunnar.
Daði Freyr sem er að gefa út nýja plötu á morgun – við heimsækjum hann í stúdíóið á nýja heimilinu í Hveragerði og hann tekur fyrir okkur lagið þar.
Önnur þáttaröð dönsku dramaþáttanna um kokkana Michael og Nöju sem ákveða að gefa samstarfinu annað tækifæri og opna nýjan veitingastað saman. Málin flækjast þegar Naja fellur fyrir fjárfestinum þeirra, Cecilie, og vantraust Michaels eykst sífellt. Aðalhlutverk: Jesper Zuschlag og Julie Rudbæk. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Leikin þáttaröð um líf og störf lögreglumanna í Chicago. Aðalhlutverk: Jason Beghe, Jesse Lee Soffer og Tracy Spiridakos. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir gamanþættir um einfarann John Taylor sem gefur út þrautabækur undir dulnefninu „Ludwig.“ Þegar eineggja tvíburabróðir hans, James, hverfur sporlaust heldur John á lögreglustöðina til að grennslast fyrir um hann. Þar er bræðrunum ruglað saman og John er skyndilega kominn í starf bróður síns sem rannsóknarlögreglustjóri Cambridge. Aðalhlutverk: David Mitchell, Anna Maxwell Martin og Dipo Ola. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarþáttaröð frá BBC þar sem ljósmyndir eru notaðar til að fara yfir lífshlaup þekktra einstaklinga.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.