
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Andri Freyr Viðarsson skoðar hina hliðina á hversdagsleikanum. Hann heimsækir forvitnilega staði, mætir á áhugaverð mannamót, spjallar við sérstakar týpur og prófar óvenjuleg störf. Ekkert er Andra óviðkomandi á flandri sínu um höfuðborgina; málaðir miðaldra rokkarar, falið kúluspilasafn, moskva í miðbænum, skeggjuð kona, fitulaust brúnt fólk, háskólanemar í þykjó, samkynhneigðir söngfuglar og fleira. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Stórveldið ehf.
Andri hefur ferðalag sitt um Andraland á heimsókn í Hringrás, þar sem brotajárn og rusl verður að gulli. Hann fylgist einnig með hraustasta pari á Íslandi, þeim Hlyni og Kristínu, keppa í Fitness-móti sem haldið var í Háskólabíói um páskana. Í litlum bílskúr í Þingholtunum finnur Andri svo fjársjóð í formi kúluspila.

Norskir þættir um líkamstjáningu þar sem teknar eru fyrir ýmsar aðstæður sem fólk verður gjarnan óöruggt í. Fjallað er um hvernig hægt er að vinna með líkamstjáningu til að virka öruggari til dæmis á stefnumótum og í atvinnuviðtölum.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í Miðstöðinni þessa vikuna förum við í heimsókn til Ísafjarðar og kynnumst finnsk-íslenska metsöluhöfundinum Satu Ramö sem er búsett þar. Hún hefur undanfarin ár skrifað glæpasögur um lögreglukonuna Hildi sem nú er búið að kvikmynda og gefa út sem sjónvarpsseríu í Sjónvarpi Símans.
Glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson eru sérfræðingar vikunnar. Við ætlum að ræða bestu glæpaþættina og áhorfendur fá meðmæli frá þeim.
Að lokum kynnumst við tónlistarmanninum Reyni Snæ Magnússyni. Hann hefur spilað með helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar á gítar en nú er tími til kominn að hann stígi fram með sitt eigið efni. Hann flytur nýtt lag í þættinum.


Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Líf Matildu verður bókstaflega tvöfalt.

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Þrjú ungmenni takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Hér mætir íslenskur veruleiki óbeisluðu ímyndunarafli. Þættirnir skarta sex frumsömdum lögum eftir FLOTT. Aðalhlutverk: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og Vigdís Hafliðadóttir. Leikstjóri: Kristófer Dignus. Framleiðsla: Kontent.
Diljá fær ritstíflu þegar hún kemst að því að það er stutt í einstaklingsverkið hennar. Janus fær nóg af túristum í starfi sínu sem leiðsögumaður. Teitur fær sýndarveruleikagleraugu. Ofan á þetta þurfa þau öll að tækla verstu spurningar allra tíma: „Hvernig ertu? Hvað ertu að gera?“

Skemmtiatriði og tónlistarflutningur úr skemmtiþættinum Góðir Íslendingar þar sem Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.

Breskir leiknir þættir frá 2025. Evie og Noa eru forfallnir kvikmyndanördar sem fá útrás fyrir áhugamálið í vikulegum kvikmyndaklúbbi þar til að óvænt flétta kemur klúbbnum í uppnám. Aðalhlutverk: Aimee Lou Wood, Nabhaan Rizwan og Liv Hill.

Önnur þáttaröð breskra glæpaþátta um skosku rannsóknarlögreglukonuna Karen Pirie sem rannsakar gamalt, óleyst sakamál og kemur auga á ýmsa vankanta á upphaflegu rannsókninni. Aðalhlutverk: Lauren Lyle, Chris Jenks og Zach Wyatt. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Franskur vísindatryllir frá 1965 um bandarískan leyniþjónustumann sem er sendur til fjarlægu geimborgarinnar Alphaville til að finna týndan leyniþjónstumann og illan vísindamann sem stjórnar borginni í gegnum ofurtölvu. Leikstjóri: Jean-Luc Godard. Aðalhlutverk: Eddie Constantine, Anna Karina og Akim Tamiroff. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fjórir listar eru í framboði í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Jovana Pavlovic, Borgarbyggðarlistinn, Davíð Sigurðsson, Framsóknarflokki, Sigurður Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki og Haukur Þór Hauksson, Miðflokki.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fjórir listar eru í framboði í Hveragerði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Marta Rut Ólafsdóttir, Framsóknarflokki, Ingimar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Lárus Jónsson, Okkar Hveragerði og Birgitta Ragnarsdóttir, Samfylkingu og óflokksbundnum.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

An Icelandic comedy series by Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Three young adults navigate the challenges of their twenties: university life, the job market, ghosts of past relationships and faded childhood dreams. The series features six original songs by the band FLOTT. Starring: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Director: Kristófer Dignus. Production: Kontent.